Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Atburðir

Harmonikuball á Patró

Harmonikudansleikur í Félagsheimilinu á Patreksfirði laugardaginn 1.september n.k.kl:22,00-02. Harmonikufélag Vestfjarða

Tvíþætt haustferð Ferðafélags Ísfirðinga

Í boði verða tvær leiðir: Leið eitt-erfiðari ferð: Gengið verður úr Skálavík upp á Gölt. Gengið meðfram brúnum Keflavíkur og svo inn fjallið og komið niður á Norðureyri í Súgandafirði. Frekar erfið 3 skóa leið sem tekur ca. 5 tíma. Lagt af stað frá Bónus á Ísafirði kl. 09:00. Leið tvö-léttari ferð: Gengið verður úr Selárdal í Súgandafirði út á Norðureyri. Frekar létt láglendisleið sem tekur ca. 2 tíma. Lagt af stað frá Bónus á Ísafirði kl. 12:00. Á Norðureyri sameinast gönguhóparnir og verða göngumenn fluttir yfir til Suðureyrar á slöngubát. Rútuferðir verða frá Ísafirði í Skálavík og Selárdal og frá Suðureyri til Ísafjarðar að lokinni göngu. Verð per. mann er 3000 kr. (rútuferðir og bátsferð) Ath.skráning fyrirfram í þessar ferðir hjá Sturlu í síma 8921688 eða Þresti í síma 8466355 fyrir kl. 20:00 á föstudag. Þeir veita einnig frekari upplýsingar um ferðirnar.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir