Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, er búin að snúa við ákvörðun forvera sín, Ögmundar Jónassonar, um Teigsskóg, og hefur heimilað vegamálastjóra að setja vegagerð um þessa umdeildu leið í nýtt umhverfismat.
Unglingalandsliðskonan Eva Margrét Kristjánsdóttir sem fór fyrir 16 ára landsliðinu á NM í vor hefur ákveðið að flytja í Stykkishólm og stunda nám við FSn og leika með Snæfell næsta vetur. Eva Margrét lék með KFÍ síðasta vetur í 1. deildinni þar sem hún skoraði 18.7 stig að meðaltali í leik, tók 8.4 fráköst og gaf 3.1 stoðsendingu. Eva Margrét mun leika með stúlkna og unglingaflokki Snæfells sem og meistaraflokki félagsins. Eva er af mörgum talin einn efnilegasti kvennaleikmaður landsins um þessar mundir.
Fjölbreytt starfsemi er á Hrafnseyri í allt sumar sem tengist fræðum og ferðamennsku og minningu fyrri íbúa á höfuðsetrinu fornfræga. Í dag 17. júní verður hátíðardagskrá, þar sem Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytur hátíðarræðu. Fornleifarannsóknin á miðaldamenjum kringum gamla kirkjugarðinn sem hófst í fyrra heldur áfram. Síðasta fumar fundust þar mannabein sem aldurgreind voru frá því 1030-1050, svo þar er kominn fram einn elsti íbúi á Hrafnsveyri. Annars ber hæst á þessu ári að 800 ár eru frá dauða Hrafns Sveinbjarnarsonar, goðorðsmanns, höfðingja og læknis, sem drepinn var eftir aðför að staðnum haustið 1213. Af því tilefni verður efnt til sérstakrar dagskrár á Hrafnseyri 24. ágúst. Hópar fræðimanna koma í sumar í tengslum við ýmis verkefni, Safn Jóns Sigurðssonar er opið fyrir ferðamenn og aðra gesti og kaffiveitingarnar eru á sínum stað í burstabænum.
Halldór Gunnar Pálsson, tónlistarmaður og einn forsprakka Fjallabræðra, sendi kveðju sem birtist í alþjóðlegri útsendingu frá leik San Antonio og Miami í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt. Halldór Gunnar sendi inn mynd af sér þar sem hann sést fylgjast með leiknum á spjaldtölvu utandyra í miðnætursólinni.
Strandabyggð er hástökkvari nýs fasteignamats sem kynnt var í dag. Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri, þakkar blómlegu atvinnulífi og bættum samgöngum vaxandi áhuga á sveitarfélaginu. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár sýnir að mat fasteigna í Strandabyggð hefur hækkaði um 16,3 prósent. Andrea segir að fólk hafi trú á samfélaginu í sveitarfélaginu. „Hér hafa allir næga vinnu,“ segir hún. „Hér er frekar skortur á húsnæði. Það er sóst eftir húsnæði hérna. Ég held að það hafi sitt að segja.“
%foreign_more%BV sló BÍ/Bolungarvík úr leik í 16-liða úrslitum bikarkeppni Knattspyrnusambands Íslands með 1-0 sigri á Ísafirði í gær.Umdeilt atvik átti sér stað á 82. mínútu, en þá voru heimamenn undir og einu leikmanni færri. Dennis Nielsen, danskur miðvörður Djúpmanna, átti þá skalla að marki eftir hornspyrnu Nigel Quashie, en David James í marki Eyjamanna varði á stórbrotinn hátt. Margir stuðningsmenn BÍ/Bolungarvíkur vilja þó meina að boltinn hafi farið allur yfir marklínuna áður en James náði til hans. Vestfirðingurinn Fjölnir Baldursson náði nokkuð góðu myndbandi af atvikinu og má sjá það með því að smella hér. Dæmi hver fyrir sig.
%foreign_more%Bílveltan sem varð í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi í morgun var banaslys, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Ökumaður bílsins lést á leiðinni á sjúkrahús. Lögreglunni barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys í Skötufirði kl. 11:50 í morgun. Bíll hafði farið út af vegi og oltið með þeim afleiðingum að ökumaður kastaðist út úr bílnum.
%foreign_more%BÍ/Bolungarvík og ÍBV mættust í fyrsta leiknum í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla, bikarkeppni KSÍ, á Torfnesvelli á Ísafirði klukkan 18.00. ÍBV hafði betur 1:0 með marki Aarons Spear á 38. mínútu.
%foreign_more%Forsvarsmenn Mýrarboltans, sem fram fer árlega á Ísafirði um Verslunarmannahelgina, hafa skorað á Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, að gegna stöðu yfirmanns dómaramála fari svo að ÍBV tapi gegn BÍ/Bolungarvík í kvöld.
%foreign_more%Guðni Páll Viktorsson hefur í dag 25. róðralegginn í ferð sinni umhverfis Ísland en hann ætlar að leggja upp frá Svalvogum og róa um 28 km að Fjallaskaga. Með Guðna í för verður Magnús Einarsson, kajakræðari á Ísafirði, en þeir félagar réru einnig saman í gær og mældist sá leggur 55 km.
%foreign_more%Fyrirhugað sjö þúsund tonna sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi, þar á meðal á laxi, skal háð mati á umhverfisáhrifum. Landssamband veiðifélaga (LV) telur um áfangasigur að ræða. Á síðasta ári ákvað Skipulagsstofnun að fyrirhugað 7.000 tonna sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi skildi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. LV kærði þá ákvörðun.
%foreign_more%Þrír kettlingar og læða fundust í pappakassa fyrir ofan annan snjóflóðavarnargarðinn ofan við Ísafjörð í síðustu viku. Farið var með kettina í áhaldahús bæjarins þar sem starfsmenn tóku vel á móti þeim og hafa hugsað um þá síðustu daga.
Ísfirðingurinn Anna Porter deildi mynd af kettinum á Facebooksíðu sinni fyrir helgi í von um að einhver vildi gefa köttunum nýtt heimili. „Ég fékk mikil viðbrögð og það voru margir sem vildu bjarga þeim,“ sagði hún í samtali við mbl.is.
%foreign_more%Fimmtán ára unglingar í vinnuskólanum á Ísafirði fá 48 prósent hærra tímakaup en jafnaldrar þeirra í Reykjavík. Í minni sveitarfélögum er oft meiri vinnu að hafa og tekjumöguleikar unglinganna því meiri. Vinnuskólar flestra sveitafélaga hafa tekið til starfa. Þessir unglingar snyrtu beð í Reykjavík í dag og víða um land mátti sjá krakka við sömu iðju. En þó vinnan sé yfirleitt svipuð eru launin það ekki. Í Reykjavík fá 15 ára unglingar 437 krónur á tímann með orlofi. Í Kópavogi er tímakaupið 136 krónum hærra og á Ísafirði fá 15 ára unglingar í vinnuskólanum 647 krónur á tímann. Þannig borgar vinnuskóli Ísafjarðar 48 prósent hærra tímakaup en vinnuskólinn í Reykjavík.
%foreign_more%Bikarleikur Boltafélags Ísafjarðar og Bolungarvíkur gegn liði Vestmannaeyja í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla verður hér á Torfnesvellinum á fimmtudagskvöld, 13. júní. Leikurinn átti að vera viku síðar, en vegna leikja í 1. deildinni, var óskað eftir að færa leikinn framar. Leikur BÍ/Bol gegn ÍBV hefst á fimmtudaginn klukkan 18.
%foreign_more%„Bergið er alveg kynngimagnað,“ segir Guðni Páll Viktorsson, kajakræðari sem staddur er í Breiðuvík á Vestfjörðum og hefur nú róið tæplega helminginn af leiðinni umhverfis Ísland. Gísli hóf ferð sína 30. apríl síðastliðinn og hefur lent í ýmsum ævintýrum síðan. Honum brá svo sannarlega í brún í morgun þegar grjóthnullungar hrundu úr Látrabjargi þar sem hann var við siglingu.
%foreign_more%Stærsta verk sem Vegagerðin hefur ráðist í eftir hrun, þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, er komið í fullan gang. Þegar verkinu lýkur fækkar síðustu malarköflunum milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um helming. Vegfarendur losna þarna við fjórar einbreiðar brýr, snjóþunga fjarðabotna, krappar beygjur, blindhæðir og síðast en ekki síst: 24 kílómetra langan malarveg.
%foreign_more%„Við byrjuðum ekkert sérstaklega vel í leiknum en við vöknuðum eftir að hafa fengið á okkur markið og eftir það var stígandi í okkar leik. Seinni hálfleikinn áttum við svo algjörlega,“ segir Sigurgeir Sveinn Gíslason, fyrirliði BÍ/Bolungarvíkur sem lagði Fjölni, 4:2, í fimmtu umferð 1. deildar karla í fótbolta á laugardaginn.
%foreign_more%Nigel Quashie skoraði tvö mörk þegar BÍ/Bolungarvík bar sigurorð af Fjölni 1:3 í Grafarvogi í dag. Með sigrinum fór liðið á topp 1. deildar um stundarsakir að minnsta kosti. Illugi Þór Gunnarsson kom heimamönnum yfir með marki eftir 11. mínútur en rétt fyrir hálfleik jafnaði Max Touloute. Þá var komið að þætti Nigel Quashie sem skoraði tvö mörk og kom BÍ/Bolungarvík í 3:1. Júlíus Orri Óskarsson minnkaði muninn fyrir Fjölni en lengra komust þeir ekki þrátt fyrir að leika með fjóra menn í framlínunni undir lokinn.
%foreign_more%