Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat
Fjallabróðir í NBA-útsendingu
Halldór Gunnar Pálsson, tónlistarmaður og einn forsprakka Fjallabræðra, sendi kveðju sem birtist í alþjóðlegri útsendingu frá leik San Antonio og Miami í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt. Halldór Gunnar sendi inn mynd af sér þar sem hann sést fylgjast með leiknum á spjaldtölvu utandyra í miðnætursólinni.
Fasteignamat hækkar mest í Strandabyggð
Strandabyggð er hástökkvari nýs fasteignamats sem kynnt var í dag. Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri, þakkar blómlegu atvinnulífi og bættum samgöngum vaxandi áhuga á sveitarfélaginu. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár sýnir að mat fasteigna í Strandabyggð hefur hækkaði um 16,3 prósent. Andrea segir að fólk hafi trú á samfélaginu í sveitarfélaginu. „Hér hafa allir næga vinnu,“ segir hún. „Hér er frekar skortur á húsnæði. Það er sóst eftir húsnæði hérna. Ég held að það hafi sitt að segja.“
Fór boltinn yfir línuna hjá David James?
BV sló BÍ/Bolungarvík úr leik í 16-liða úrslitum bikarkeppni Knattspyrnusambands Íslands með 1-0 sigri á Ísafirði í gær.Umdeilt atvik átti sér stað á 82. mínútu, en þá voru heimamenn undir og einu leikmanni færri. Dennis Nielsen, danskur miðvörður Djúpmanna, átti þá skalla að marki eftir hornspyrnu Nigel Quashie, en David James í marki Eyjamanna varði á stórbrotinn hátt. Margir stuðningsmenn BÍ/Bolungarvíkur vilja þó meina að boltinn hafi farið allur yfir marklínuna áður en James náði til hans. Vestfirðingurinn Fjölnir Baldursson náði nokkuð góðu myndbandi af atvikinu og má sjá það með því að smella hér. Dæmi hver fyrir sig.
Banaslys í Skötufirði
Bílveltan sem varð í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi í morgun var banaslys, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Ökumaður bílsins lést á leiðinni á sjúkrahús. Lögreglunni barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys í Skötufirði kl. 11:50 í morgun. Bíll hafði farið út af vegi og oltið með þeim afleiðingum að ökumaður kastaðist út úr bílnum.
Vinsælar fréttir
- Eva Margrét söðlar um og skiptir í Snæfell
- Fjallabróðir í NBA-útsendingu
- Fór boltinn yfir línuna hjá David James?
- Fjölbreytt starfsemi á Hrafnseyri í allt sumar: Fornleifarannsókn, fræði og ferðamenn
- Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat
- Myndband: Listakaupstaður á Ísafirði
- Vestfirskir fimm aura brandarar
- Banaslys í Skötufirði
- Markaðsdeild Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum frá hátíðum og viðburðum á Vestfjörðum fyrir 2013
- Skynsamlegt að kjósa snemma
- Hleypur til Ísafjarðar
- Skora á Hermann að "drulla" sér vestur
ÍBV í átta liða úrslit eftir sigur fyrir vestan
BÍ/Bolungarvík og ÍBV mættust í fyrsta leiknum í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla, bikarkeppni KSÍ, á Torfnesvelli á Ísafirði klukkan 18.00. ÍBV hafði betur 1:0 með marki Aarons Spear á 38. mínútu.
%foreign_more%Skora á Hermann að "drulla" sér vestur
Forsvarsmenn Mýrarboltans, sem fram fer árlega á Ísafirði um Verslunarmannahelgina, hafa skorað á Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, að gegna stöðu yfirmanns dómaramála fari svo að ÍBV tapi gegn BÍ/Bolungarvík í kvöld.
%foreign_more%Brátt 1.000 km að baki
Guðni Páll Viktorsson hefur í dag 25. róðralegginn í ferð sinni umhverfis Ísland en hann ætlar að leggja upp frá Svalvogum og róa um 28 km að Fjallaskaga. Með Guðna í för verður Magnús Einarsson, kajakræðari á Ísafirði, en þeir félagar réru einnig saman í gær og mældist sá leggur 55 km.
%foreign_more%Laxeldi skal í umhverfismat
Fyrirhugað sjö þúsund tonna sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi, þar á meðal á laxi, skal háð mati á umhverfisáhrifum. Landssamband veiðifélaga (LV) telur um áfangasigur að ræða. Á síðasta ári ákvað Skipulagsstofnun að fyrirhugað 7.000 tonna sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi skildi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. LV kærði þá ákvörðun.
%foreign_more%Kettlingar heim með kvöldfluginu
Þrír kettlingar og læða fundust í pappakassa fyrir ofan annan snjóflóðavarnargarðinn ofan við Ísafjörð í síðustu viku. Farið var með kettina í áhaldahús bæjarins þar sem starfsmenn tóku vel á móti þeim og hafa hugsað um þá síðustu daga.
Ísfirðingurinn Anna Porter deildi mynd af kettinum á Facebooksíðu sinni fyrir helgi í von um að einhver vildi gefa köttunum nýtt heimili. „Ég fékk mikil viðbrögð og það voru margir sem vildu bjarga þeim,“ sagði hún í samtali við mbl.is.
%foreign_more%Misjöfn kjör í vinnuskólanum
Fimmtán ára unglingar í vinnuskólanum á Ísafirði fá 48 prósent hærra tímakaup en jafnaldrar þeirra í Reykjavík. Í minni sveitarfélögum er oft meiri vinnu að hafa og tekjumöguleikar unglinganna því meiri. Vinnuskólar flestra sveitafélaga hafa tekið til starfa. Þessir unglingar snyrtu beð í Reykjavík í dag og víða um land mátti sjá krakka við sömu iðju. En þó vinnan sé yfirleitt svipuð eru launin það ekki. Í Reykjavík fá 15 ára unglingar 437 krónur á tímann með orlofi. Í Kópavogi er tímakaupið 136 krónum hærra og á Ísafirði fá 15 ára unglingar í vinnuskólanum 647 krónur á tímann. Þannig borgar vinnuskóli Ísafjarðar 48 prósent hærra tímakaup en vinnuskólinn í Reykjavík.
%foreign_more%Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
Bikarleikurinn gegn ÍBV verður á fimmtudaginn
Bikarleikur Boltafélags Ísafjarðar og Bolungarvíkur gegn liði Vestmannaeyja í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla verður hér á Torfnesvellinum á fimmtudagskvöld, 13. júní. Leikurinn átti að vera viku síðar, en vegna leikja í 1. deildinni, var óskað eftir að færa leikinn framar. Leikur BÍ/Bol gegn ÍBV hefst á fimmtudaginn klukkan 18.
%foreign_more%„Bergið er alveg kynngimagnað“
„Bergið er alveg kynngimagnað,“ segir Guðni Páll Viktorsson, kajakræðari sem staddur er í Breiðuvík á Vestfjörðum og hefur nú róið tæplega helminginn af leiðinni umhverfis Ísland. Gísli hóf ferð sína 30. apríl síðastliðinn og hefur lent í ýmsum ævintýrum síðan. Honum brá svo sannarlega í brún í morgun þegar grjóthnullungar hrundu úr Látrabjargi þar sem hann var við siglingu.
%foreign_more%Fækka malarköflunum til Patreksfjarðar um helming
Stærsta verk sem Vegagerðin hefur ráðist í eftir hrun, þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, er komið í fullan gang. Þegar verkinu lýkur fækkar síðustu malarköflunum milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um helming. Vegfarendur losna þarna við fjórar einbreiðar brýr, snjóþunga fjarðabotna, krappar beygjur, blindhæðir og síðast en ekki síst: 24 kílómetra langan malarveg.
%foreign_more%Quashie með hugarfar sem við þurfum
„Við byrjuðum ekkert sérstaklega vel í leiknum en við vöknuðum eftir að hafa fengið á okkur markið og eftir það var stígandi í okkar leik. Seinni hálfleikinn áttum við svo algjörlega,“ segir Sigurgeir Sveinn Gíslason, fyrirliði BÍ/Bolungarvíkur sem lagði Fjölni, 4:2, í fimmtu umferð 1. deildar karla í fótbolta á laugardaginn.
%foreign_more%1.deild. BÍ/Bolungarvík á toppnum
Nigel Quashie skoraði tvö mörk þegar BÍ/Bolungarvík bar sigurorð af Fjölni 1:3 í Grafarvogi í dag. Með sigrinum fór liðið á topp 1. deildar um stundarsakir að minnsta kosti. Illugi Þór Gunnarsson kom heimamönnum yfir með marki eftir 11. mínútur en rétt fyrir hálfleik jafnaði Max Touloute. Þá var komið að þætti Nigel Quashie sem skoraði tvö mörk og kom BÍ/Bolungarvík í 3:1. Júlíus Orri Óskarsson minnkaði muninn fyrir Fjölni en lengra komust þeir ekki þrátt fyrir að leika með fjóra menn í framlínunni undir lokinn.
%foreign_more%Ísafjarðardúx til Bandaríkjanna
Sigmundur Ragnar Helgason er dúx Menntaskólans á Ísafirði. Hann hlaut meðaleinkunnina 9,67 og útskrifaðist af náttúrufræðibraut. „Maður þarf bara að stefna að því að fá 10 í öllu sem maður eftir,“ segir Sigmundur, en meirihlutinn af einkunnum hans í stúdentsprófum voru tíur.
%foreign_more%Stefanía Helga Ásmundsdóttir ráðin skólastjóri á Þingeyri
Á fundi fræðslunefndar á miðvikudag var lagt til að Stefanía Helga Ásmundsdóttir yrði ráðin skólastjóri Grunnskólans á Þingeyri. Daníel Jakobsson bæjarstjóri hefur samþykkt ráðningu hennar. Tveir umsækjendur voru um stöðuna sem auglýst var hinn 20. apríl. Stefanía hefur lokið B.ed prófi frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið 90 (af 120) einingum í M.ed námi í uppeldis- og menntunarfræðum við HÍ. Undanfarin tvö ár hefur hún starfað sem forstöðumaður skammtímavistunar hjá Ísafjarðarbæ. Í Grunnskólanum á Þingeyri verða um 30 nemendur á næsta skólaári en með flutningi Stefaníu og hennar fjölskyldu til Þingeyrar bætast tvö börn við í skólann. Stefanía er í sambúð með Ísfirðingnum Ármanni Múla Karlssyni og eiga þau saman þrjú börn.
%foreign_more%Strandsiglingar fá góðan meðbyr
Strandsiglingar sem hófust á nýjan leik við strendur Íslands í vor hafa farið vel af stað, að sögn talsmanna skipafélaganna Eimskips og Samskipa. Siglingarnar hafa haft það í för með sér að dregið hefur úr akstri flutningabíla fyrirtækjanna um vegi landsins. Það eru helst fiskafurðir sem fluttar eru með þessum siglingaleiðum og enda í Evrópu.
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:07:00
SSV 2 m/s, 9,6 °C - Gemlufallsheiði kl:07:00
Logn 0 m/s, 7,8 °C - Patreksfjörður kl:07:00
Logn 0 m/s, 9,2 °C - Reykhólar kl:07:00
Logn 0 m/s, 10,3 °C - Tálknafjörður kl:07:00
ANA 1 m/s, 9,5 °C
- Bolungarvík kl:07:00
ANA 1 m/s, 9,7 °C - Flateyri kl:07:00
ASA 2 m/s, 8,7 °C - Ísafjörður kl:07:00
VSV 1 m/s, 10,5 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:07:00
NA 2 m/s, 4,8 °C - Súðavík kl:07:00
SSV 1 m/s, 9,0 °C

Meira






