Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
ruv.is | 07/05/2013 Kl. 23:48

Vestfirskir fimm aura brandarar

Mugison syngur fyrir Súðavíkurgöng

skutull.is | 04/04/2013 Kl. 15:39

Hópur áhugafólks um ný Álftafjarðargöng (Súðavíkurgöng) kom saman á Súðavíkurhlíðinni nú í hádeginu til þess að leggja áherslu á að undirbúningur að gerð Súðavíkurganga geti hafist sem fyrst og að göngin komist á samgönguáætlun. Samhljóða þingsályktunartillaga var lögð fram á Alþingi í janúar síðastliðnum af þingmönnum Norðvesturkjördæmis undir forystu Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanns sem er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. (sjá vef Alþingis hér). Er það í fyrsta sinn sem flutt er þingmál um Súðavíkurgöng sem enn hafa ekki komist inn á samgönguáætlun.

Við þetta tækifæri var hrundið af stað formlegri undirskritasöfnun á netsíðunni www.alftafjardargong.is. Þar er skorað á stjórnvöld að hefja nú þegar og án tafa rannsóknir og undirbúning að gerð jarðganga milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar. Fram kemur á síðunni að þjóðvegurinn um Súðavíkurhlíð í Álftafirði og Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði sé talinn einn hættulegasti vegur landsins og löngu orðið tímabært og bráðnauðsynlegt að bæta þar úr með jarðgöngum, enda eru Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð farartálmar allra íbúa á norðanverðum Vestfjörðum, (Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Ísafjarðar, Bolungarvíkur) sem komast þurfa landleiðina frá norðanverðum Vestfjörðum og einnig fyrir þá sem eiga leið inn á norðanverða Vestfirði.

Mugison og Rúna voru meðal gesta á hlíðinní í dag, og tóku lagið til áréttingar kröfunni um ný jarðgöng, eins og sjá má á þessu myndbandi sem Ólína Þorvarðardóttir birti á facebook síðu sinni eftir fundinn http://www.youtube.com/watch?v=nZQSzXE-yEo

Þingmenn þjóðarinnar sungu Þjóðlagið

dv.is | 06/03/2013 Kl. 14:39

Tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson mætti með upptökugræjurnar niður á Alþingi í dag þar sem hann tók upp söng þingmanna sem verður í Þjóðlaginu svokallaða. Verkefnið nefnist Rödd þjóðarinnar en Halldór Gunnar hefur síðastliðin misseri unnið að því að festa rödd þjóðarinnar á upptöku og er langt kominn með verkefnið en hann lagði upp með að láta þrjátíu þúsund manns syngja inn á upptökuna.

Hefur hann ferðast hringinn í kringum landið fyrir þetta verkefni og lá nú leið hans niður í Alþingishúsið þar sem þingmennirnir sungu hraustlega fyrir hann.

ruv.is | 07/05/2013 Kl. 23:48

Vestfirskir fimm aura brandarar

Það er hreinasta lífsnauðsyn að halda gleðinni, og þá helst með báðum höndum. Þetta er mat Sveinbjörns Hjálmarssonar, eða Simba verslunarmanns, og samstarfskvenna hans í Hafnarbúðinni á Ísafirði. Mitt í nýafstöðnu kosningafári vöktu skopmyndir sem Simbi hefur tekið og sett á facebook-síðu sína athygli. Simbi viðurkennir fúslega að verð brandaranna sé frekar talið í aurum en krónum þó talsverð vinna liggi í framkvæmdinni. Helgi Seljan og Jóhannes Jónsson litu inn í Hafnarbúðina.

skutull.is | 04/04/2013 Kl. 15:39

Mugison syngur fyrir Súðavíkurgöng

Hópur áhugafólks um ný Álftafjarðargöng (Súðavíkurgöng) kom saman á Súðavíkurhlíðinni nú í hádeginu til þess að leggja áherslu á að undirbúningur að gerð Súðavíkurganga geti hafist sem fyrst og að göngin komist á samgönguáætlun. Samhljóða þingsályktunartillaga var lögð fram á Alþingi í janúar síðastliðnum af þingmönnum Norðvesturkjördæmis undir forystu Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanns sem er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. (sjá vef Alþingis hér). Er það í fyrsta sinn sem flutt er þingmál um Súðavíkurgöng sem enn hafa ekki komist inn á samgönguáætlun.

Við þetta tækifæri var hrundið af stað formlegri undirskritasöfnun á netsíðunni www.alftafjardargong.is. Þar er skorað á stjórnvöld að hefja nú þegar og án tafa rannsóknir og undirbúning að gerð jarðganga milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar. Fram kemur á síðunni að þjóðvegurinn um Súðavíkurhlíð í Álftafirði og Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði sé talinn einn hættulegasti vegur landsins og löngu orðið tímabært og bráðnauðsynlegt að bæta þar úr með jarðgöngum, enda eru Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð farartálmar allra íbúa á norðanverðum Vestfjörðum, (Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, Ísafjarðar, Bolungarvíkur) sem komast þurfa landleiðina frá norðanverðum Vestfjörðum og einnig fyrir þá sem eiga leið inn á norðanverða Vestfirði.

Mugison og Rúna voru meðal gesta á hlíðinní í dag, og tóku lagið til áréttingar kröfunni um ný jarðgöng, eins og sjá má á þessu myndbandi sem Ólína Þorvarðardóttir birti á facebook síðu sinni eftir fundinn http://www.youtube.com/watch?v=nZQSzXE-yEo

dv.is | 06/03/2013 Kl. 14:39

Þingmenn þjóðarinnar sungu Þjóðlagið

Tónlistarmaðurinn Halldór Gunnar Pálsson mætti með upptökugræjurnar niður á Alþingi í dag þar sem hann tók upp söng þingmanna sem verður í Þjóðlaginu svokallaða. Verkefnið nefnist Rödd þjóðarinnar en Halldór Gunnar hefur síðastliðin misseri unnið að því að festa rödd þjóðarinnar á upptöku og er langt kominn með verkefnið en hann lagði upp með að láta þrjátíu þúsund manns syngja inn á upptökuna.

Hefur hann ferðast hringinn í kringum landið fyrir þetta verkefni og lá nú leið hans niður í Alþingishúsið þar sem þingmennirnir sungu hraustlega fyrir hann.

strandamenn.is | 23/02/2013 Kl. 10:51

Harlem Shake í Ozon

Nýtt æði hefur gripið um sig á Íslandi. Gleymið Gangnam style og planka. Harlem shake er það flottasta í dag. Krakkarnir okkar og foreldrar létu sig ekki segjast og gerðu myndband sem hefur nú ratað á internetið. Foreldrar unglingadeildar þáðu boð um að eiga kvöldstund í félagsmiðstöðinni Ozon við spil og leiki. Eins og þeim einum er lagið varð útkoman skemmtileg.

Hér að neðan má sjá myndbandið

kampi.is | 13/02/2013 Kl. 15:22

Ísbjörn - The Movie

Ísbjörn ÍS 304 kom til hafnar á Húsavík af rækjumiðum fyrir norðan land um miðjan janúar sl en stoppaði stutt því erindið var eingöngu að sækja umbúðir og fleira. Hafþór Hreiðarsson á Húsavík tók þá kvikmynd af skipinu og setti á internetið um síðustu helgi sem má sjá á þessari netslóð http://www.youtube.com/watch?v=XBFTnNqRayI

%foreign_more%
Vestur.is | 11/02/2013 Kl. 22:53

Myndband: Dramatík á Torfnesi

Snæfell sigraði lið KFÍ í framlengdum leik í gærkvöldi 106-110. Myndbandið hér að ofan gerði Fjölnir Baldursson. Frekari umfjöllun um leikinn má nálgast hér.

%foreign_more%

Það er óhætt að skrifa hér að fólk hafi fengið góða skemmtun á Jakanum í kvöld. Bæði lið voru að spila frábæran bolta, en í þetta sinn voru drengirnir okkar aðeins sterkari þegar á þurfti að halda og fóru með sigur af hólmi. Lokatölur 92-85.

 

Strax frá byrjun var ljóst að bæði lið ætluðu sér að sigra enda var þessi leikur fjögurra stiga leikur. Fyrri leikur liðanna fór 86-83 fyrir okkur á Sauðárkrók og bæði þessi lið þurftu nauðsynla að sigra leikinn. Og það var eins og við manninn mælt. Nýji leikmaður Stólanna byrjaði feykilega sterkt og kom gestunum á bragðið og komust þeir vel gang en enginn þó betri en Þröstur Leó sem fór að hitta ógurlega. En í okkar liði eru líka frambærilegar skyttur og fór Kristján Pétur fyrir þeim og elti Þröst. Eftir fyrsta leikhluta var allt í járnum og var staðan eftir hann 22-23.

 

Áfram hélt fjörið í þeim næsta og náðu okkar drengir smá forskoti, en Stólarnir voru aldrei langt undan og ef litið var af þeim augnablik gengu þeir á lagið og voru komnir upp að okkur á svipstundu. Þegar gengið var til búningasklefa var staðan 41-41 og víst var að seinni hálfleikur yrði mikið stríð.

 

En svo kom flottur kafli hjá Ísdrengjunum og staðan eftir sex mínútur var 60-49 og leikurinn nokkuð okkur í hag. Góð vörn var að skapa þetta fyrir okkur og staðan að lokum þeim þriðja var 66-58 og við með tökin.

 

Stólarnir komu ákveðnir til leiks í þeim fjórða og voru allt í einu búnir að koma leiknum í fjögur stig 70-66 og farið að trekkaj suma í sætum sínum, en þá kom Damier með góð átta stig og staðan  kominn í 77-68. Gestirnir komu til baka og náðu leiknum í fimm stig 83-78, en við áttum leikinn eftir það og silgdum mjög mikilvægum leik í höfn. Lokastaðan 92-85 og fögnuðurinn mikill hjá leikmönnum sem og fjölmörgum áhorfendum sem mættu á Jakann og eru strákarnir búnir að sigra í þremur af fjórum fyrstu leikjum eftir áramót sem er snilld og við tökum það með auðmýkt.

 

Þetta var erfiður leikur að dæma og fyrir utan örfá mistök voru dómararnir þeir Kristinn Óskarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Davíð Tómas flottir og héldu vel utan um leikinn.

 

KFÍ:

Damier setti 33 stig, 8 fráköst, 5 stoðir og 2 stolnir.

Kristján Pétur 20 stig, 5 fráköst (6/11 í þristum).

Tyrone 19 stig, 6 fráköst og 2 varin skot.

Mirko 17 stig, 15 fráköst, 3 stoðir. Maður leiksins.

Hynur 3 stig, 2 stoðsendingar.

Jón Hrafn 3 fráköst og 2 stolnir.

Sam 2 fráköst, 2 stolnir.

 

Tindastóll:

Þröstur Leó 25 stig, 4 fráköst *Maður leiksins hjá Stólunum.

Roburt Sallie 24 stig, 13 fráköst og 4 stolnir.

Robert Valintine 12 stig, 13 fráköst, 1 varinn.

Helgi Rafn 10 stig, 5 fráköst.

Svavar 5 stig, 3 fráköst.

Sigtryggur 3 stig, 2 stoðir.

Pétur Rúnar 2 stig, 2 fráköst, 2 stoðir.

Helgi Freyr 3 stig, 2 fráköst.

%foreign_more%
ruv.is | 31/01/2013 Kl. 21:41

Reyndu að tapa ekki með meira en 7 mörkum

Knattspyrnulið Snæfells í Stykkishólmi er ekki af baki dottið þrátt fyrir slæma útreið á Íslandsmótinu í fyrrasumar. Snæfell og Geislinn frá Hólmavík ætla að tefla fram sameiginlegu liði í þriðju deild karla í sumar.

Samkomulag þess efnis var undirritað í Stykkishólmi í gærkvöldi en þetta verður í fyrsta sinn í 19 ár sem Geislinn tekur þátt á Íslandsmótinu í fótbolta. Liðið mun leika heimaleiki sína í Stykkishólmi en leikmenn æfa í hópum í Reykjavík, Hólmavík og Stykkishólmi.

Það vakti mikla athygli þegar Snæfell tapaði 31-0 fyrir Haukum í bikarkeppninni í fyrrasumar. Páll Margeir Sveinsson þjálfari Snæfells segir að röð tilviljana hafa orðið til þess að hann hafi þurft að tefla fram ungu og óreyndu liði, meðal annars hafi fjöldi leikmanna úr Reykjavík sem hann bjóst við ekki mætt í leikinn.

Þrátt fyrir mikla manneklu héldu Snæfellsmenn ótrauðir áfram, liðið tapaði öllum 15 leikjum sínum í C-riðli þriðju deildar, fékk á sig 175 mörk en skoraði tvö.

Páll segir að fljótlega hafi markmiðið snúist í að reyna að tapa ekki leikjunum með meiri en 6-7 marka mun. „Mér fannst leiðinlegt að sjá einhverja stráka skrifa eitthvað leiðinlegt um liðið á Facebook, stráka sem ég hafði beðið um að koma og spila með liðinu." segir Páll meðal annars í viðtali við RÚV sem sjá má með því að smella á myndina við fréttina.

%foreign_more%
Vestur.is | 28/01/2013 Kl. 21:31

Klesst'ann Fyrir Vestan

Nemendur í efstu bekkjum Grunnskólans í Súðavík stefna á að fara í skólaferðalag til París í apríl og hafa af því tilefni gefið út geisladisk til styrktar ferðarinnar. Eggert Einer Nielson, sem sér um tónlistarkennslu við skólann átti hugmyndina og hafði umsjón með verkefninu. Eggert segir krakkana í Súðavík vera uppfulla af orku sem hann hafi varla undan við að beisla.

 

Ástæða þess að krakkarnir hafi sett stefnuna á París kom í kjölfarið á umræðu innan skólans um hverjir styrkeikar fámenna skóla séu. Pétur Markan, kennari við skólann segir að það sé oft auðvelt að festast í þeim gír að við séum fá og getum því gert lítið. Nemendur hafi þó áttað sig á því að einn af kostum þess að vera í fámennum skóla sé að þau geti, með samstilltu átaki leyft sér að fara í ansi veglegt skólaferðalag til heimsborgarinnar Parísar.

 

Parísarferðin hefur verið fléttuð inn í allt skólastarf undanfarið ár, þar sem nemendur hafa gert kostnaðaráætlun í stærðfræðitímum auk þess að læra um frönsk ljóðskáld og franska tungu í öðrum greinum.

 

Myndbrotið hér að ofan um ferðina og diskinn tók Fjölnir Baldursson.

%foreign_more%
vikari.is | 26/01/2013 Kl. 16:03

Þyrlan Muninn myndar Bolungarvík úr lofti

Gústaf Gústafsson býr á Grundunum í Bolungarvík og hefur undanfarna mánuði unnið að byggingu tveggja fjarstýrðra fjölhreyfla myndavélapalla sem ná einstaklega skemmtilegum myndbandsupptökum. Minni gerðin er 4 hreyfla (Quadcopter) sem fékk nafnið Huginn en sú stæri er 8 hreyfla (Octocopter) og fékk að sjálfsögðu nafnið Muninn. Gústaf tók Munann í útsýnisflug við Ós í gær, föstudaginn 25. janúar, og tók þá þessar mögnuðu útsýnismyndir. Sjón er sögu ríkari, smellið á hlekkinn hér að neðan og sjáið Bolungarvík frá nýju sjónarhorni.

 

Muninn - útsýnisflug við Ósinn í Ósá.

 

%foreign_more%

Viðburðardagatal

Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir

fotbolti.net | 24/01/2013 Kl. 18:24

Nigel Quashie: Þetta snýst ekki um peninga

Miðjumaðurinn Nigel Quashie skrifaði í síðustu viku undir samning við BÍ/Bolungarvík. Eftir langan feril í ensku úrvalsdeildinni gekk Quashie í raðir ÍR síðasltiðið vor. Hann mun núna leika með BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni í sumar. „Það voru nokkur félög sem höfðu áhuga á mér og ég hafði nokkra möguleika. Ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri rétt félag og rétt tækifæri," sagði Quashie við Fótbolta.net í dag en hann mun einnig þjálfa yngri flokka hjá BÍ/Bolungarvík.

,,Ég átti möguleika á að leika í Pepsi-deildinni en ég var ekki að leita eftir því að spila eitt tímabil þar og ég hefði ekki grætt á því. Ég hef átt langan feril og ég spilaði lengi í ensku úrvalsdeildinni. Án þess að sýna félögum í Pepsi-deildinni vanvirðingu þá vil ég vinna með ungum leikmönnum og ég get gert það hjá mínu nýja félagi. Það er það sem ég vil gera."

Var með möguleika erlendis:
Quashie skrifaði undir þriggja ára samning við BÍ/Bolungarvík og hann ætlar að vera áfram á Íslandi næstu árin.

,,Ég þurfti að taka fjölskyldu mína með í reikninginn. Ég átti nokkra möguleika erlendis, bæði í Evrópu og Austurlöndum fjær. Ég vildi ekki fara þangað. Ég er ennþá í formi og vil spila og ég vil vinna með ungum leikmönnum. BÍ gat boðið mér það og ég skoðaði það."

Nigel og unnusta hans eignuðust son í sumar en hann fæddist á Íslandi. Fjölskyldunni líkar vel á Íslandi og því ákvað Quashie að vera um kyrrt hér í stað þess að fara annað.

,,Þetta snýst ekki um peninga. Ég þarf ekki að fara til þessara landa til að fá mikil laun. Ég vil hjálpa ungum leikmönnum. Ég ákvað að fara frá ÍR til að hjálpa þeim fjárhagslega og reyna að gefa öðru félagi hér eitthvað. Ég er búinn að aðlagast hér og það spilaði líka inn í. Ég þarf að setja fjölskylduna í fyrsta sæti og ég ákvað að gera það. Ég er ánægður með að vera kominn í það félag sem ég er í núna og lífið heldur áfram."
Quashie er 34 ára gamall en hann segist vera í fínu formi ennþá. Hann ætlar að taka eitt tímabil í einu sem leikmaður og hefur ekki sett sér nein markmið um það hversu lengi hann ætlar að halda áfram í fótboltanum.

,,Ég ætla að spila. Ég er að hlaupa og ég held að þjálfarinn sé nokkuð hissa hversu góðu formi ég er í. Ég er alltaf í ræktinni og ég hef alltaf reynt að vera í sem besta formi. Ég tek þessu ekki sem sjálfsögðum hlut því það mun koma að því að ég get ekki spilað lengur og BÍ skilur það. Ég á möguleika á því ef ég vil hætta og einbeita mér að þjálfun."

,,Ég tek eitt tímabil í einu en ég á möguleika á að vera áfram sem þjálfari og það er eitthvað sem ég horfa á. Ég elska fótboltann og ég elska að spila. Ég hef lært mikið af þeim stjórum sem ég hef spilað hjá og ég get vonandi komið því áfram til yngri leikmanna og hjálpað þeim að verða betri."

Leikmenn á Íslandi gætu náð langt:
Quashie spilaði með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton, WBA og West Ham í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma. Munurinn er mikill á ensku úrvalsdeildinni og fyrstu deildinni á Íslandi.

,,Þetta er allt öðruvísi. Ég vanvirði ekki félögin í íslensku 1. deildinni. Þau hafa mjög góða leikmenn. Ég hef spilað gegn góðum leikmönnum hér og ef þeir hlusta og læra af þjálfurunum þá gætu þeir mögulega spilað í Evrópu. Ég hef alltaf sagt leikmönnum hjá ÍR að ef þeir eru ekki til í að fórna sér í fimm mánuði til að sýna fólki hvað þeir geta þá held ég að þeir séu ekki að taka þessu nógu alvarlega," sagði Quashie sem er spenntur fyrir komandi verkefnum á Vestfjörðum.

,,Það mikilvægasta er að ég sé ánægður, fjölskyldan sé ánægð, félagið sé ánægt og allir leikmennirnir séu ánægðir. Ég hlakka til að vinna með þeim og vera hluti af félagi sem vill komast í Pepsi-deildina á einhverjum tímapunkti."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni. Þar ræðir hann meðal annars um ÍR, íslenskan fótbolta og lífið á Íslandi.

 

%foreign_more%
ruv.is | 23/01/2013 Kl. 20:32

Björguðu syninum sem reyndi sjálfsvíg

Við heyrðum viðtal við Stefán Torfa Sigurðsson, sem er stjúpfaðir Eiríks Guðbergs Guðmundssonar sem er annar þeirra sem kom fram í umfjöllun okkar og sagði frá langvarandi kynferðisofbeldi sem hann var beittur af Gísla Hjartarsyni, kennara á Ísafirði.

Stefán Torfi sagði frá því hversu erfitt það var fyrir fjölskylduna að þola aðkastið sem Eiríkur varð fyrir þegar Gísli framdi sjálsvíg. Foreldar Eiríks björguðu lífi hans á síðustu stundu eftir að hann reyndi sjálfur að svipta sig lífi í kjölfar þessa alls. Gísli Hjartarson var vinur náinn vinur fjölskyldunnar. Sá vinskapur hófst þegar Gísli fór að hjálpa Eiríki með námið, en nokkrum mánuðum síðar hófust brotin. Þegar upp komst um þau varð það reiðarslag fyrir fjölskylduna.

%foreign_more%

Tveir menn sem fengu dæmdar hámarksbætur eftir að níðst hafði verið á þeim árum saman, segjast hafa verið kallaðir morðingjar eftir að gerandinn fyrirfór sér.

 

Kennarinn Gísli Hjartarson fyrirfór sér í janúar 2006 sama dag og DV birti forsíðufrétt um kynferðisbrot hans gegn drengjum nokkrum árum áður. Í kjölfarið varð hávær umræða í samfélaginu um fréttaflutninginn. Brotaþolarnir voru tveir unglingspiltar og árið 2009 fengu þeir dæmdar hámarksbætur vegna brotanna. Þeir segjast hafa gleymst algjörlega í umræðunni en segja sögu sína í Kastljósi í kvöld.

 

„Þetta byrjaði eftir fimmtán ára afmælisdaginn minn og gekk svona fram að rétt yfir sautján, nánast vikulega", segir Eiríkur Guðberg Guðmundsson.

 

„Maður heyrt bæði það að fólk trúir þessu og trúir þessu ekki. Ég vona að með því að koma hérna fram að fleiri trúi þessu, fatti að við vorum ekki að gera að gamni okkar. Þetta er búið og eyðileggja líf okkar hingað til. Viðbrögðin hafa verið misjöfn, margir hafa sagt flott hjá ykkur að kæra, svo hef ég líka heyrt það að menn hafa kallað okkur morðinga fyrir að hafa drepið mannin, sem við gerðum ekki", segir Hilmar Örn Þorbjörnsson.

 

Hér má sjá óklippt viðtal við Eirík Guðberg Guðmundsson

 

Hér má sjá óklippt viðtal við Hilmar Örn Þorbjörnsson

%foreign_more%
mbl.is | 22/01/2013 Kl. 16:02

Daníel hellir niður mjólkinni

Í rúmlega tvo mánuði hefur það verið eitt af daglegum verkum Daníels Jónssonar, bónda á Ingunnarstöðum í Reykhólasveit, að hella niður mjólk, en hann missti framleiðsluleyfi 12. nóvember. Framleiðslan er um 750 lítrar á dag og hún fer mestöll í niðurfallið. Matvælastofnun gerði á síðasta ári athugasemd við eitt og annað hjá Daníel, m.a. þrifnað á mjaltaþjóni og þrifnað í mjólkurhúsi. Daníel segist hafa gert úrbætur, en viðurkennir að vegna erfiðar fjárhagsstöðu sinnar hafi hann ekki treyst sér til að ráðast dýrar endurbætur. Hann telur að Matvælastofnun hafi gengið allt of hart fram í þessu máli.

Daníel kærði ákvörðun Matvælastofnunar um að svipa hann leyfi til atvinnuvegaráðuneytisins. Jafnframt óskaði hann eftir að hann fengi að selja mjólk meðan ráðuneytið væri að svara bréfinu. Því hafnaði ráðuneytið, en hann bíður hins vegar enn eftir efnislegu svar frá ráðuneytinu.

Daníel var lýstur gjaldþrota í nóvember 2011, en gjaldþrotið má m.a. rekja til fjárfestinga sem hann réðst í á árunum 2006-2007.

Daníel segist á árinu 2005 hafa fengið tilboð frá Landsbankanum um að bankinn væri tilbúinn til að fjármagna byggingu á nýju fjósi með tveimur mjaltaþjónum. Í framhaldi hafi hann keypt kvóta og fjölgað kúnum. Bankinn hafi síðar dregið í land með lánveitingar en fallist á að lána honum fyrir einum mjaltaþjóni.

Matvælastofnun hefur hafnað nýrri umsókn frá Daníel um framleiðsluleyfi vegna þess að hann eigi hvorki jörðina né bústofninn. Daníel er ósáttur við að Matvælastofnun blandi saman kvörtunum sínum við fjárhagsstöðu sína. „Mér finnst að ég hafi verið beittur miklu óréttlæti í þessu máli,“ segir Daníel.

Skiptastjóri þrotabúsins á Ingunnarstöðum segist hafa gefið honum og lögfræðingum hans góðan tíma til að finna lausn, en það hafi ekki tekist.

Nánar verður fjallað um þetta mál í Morgunblaðinu á morgun og á mbl.is.

%foreign_more%
ruv.is | 21/01/2013 Kl. 20:39

Þolendur stíga fram

Í Kastljósi þriðjudaginn 22. janúar verða viðtöl við Hilmar Örn Þorbjörnsson og Eirík Guðberg Guðmundsson.

Fyrir rúmum 7 árum kærðu þeir Gísla Hjartarsson, kennara á Ísafirði, til lögreglu fyrir ítrekuð kynferðsbrot gegn sér. Brotin voru framin þegar Hilmar og Eiríkur voru á unglingsaldri en skömmu eftir að DV birti frétt um kæru þeirra gegn Gísla, framdi hann sjálfsvíg. Gríðarleg fjölmiðlaumfjöllun varð um málið og þurftu ritstjórar DV að hætta störfum í framhaldinu. Þeir Hilmar og Eiríkur hafa aldrei áður sagt sögu sína en þeir fengu báðir hámarksbætur frá ríkinu því það þótti hafið yfir vafa að á þeim var brotið.

%foreign_more%
ruv.is | 21/01/2013 Kl. 15:39

Draumur um skemmtibátahöfn

Höfnin hefur gjarnan verið miðpunktur samfélagsins í útgerðarbæjum. En víða er nú minni löndun en áður og vöruflutningar eru litlir sem engir. Á sama tíma eru ferðamenn farnir að nota hafnirnar meira en áður, bæði farþegar skemmtiferðaskipa og ferðamenn sem koma hingað á skútum.Á Ísafirði eru uppi hugmyndir um að breyta Pollinum. Annars vegar þarf að verja byggðina fyrir ágangi sjávar og hins vegar langar marga að bæta aðgengi við Pollinn. Á sama tíma velta menn því fyrir sér hvort rétt sé að setja upp skemmtibátahöfn á Pollinum, ekki síst fyrir ferðamenn, þar sem erlendir skútueigendur sækja hingað í auknum mæli.

%foreign_more%

Sigfús Fossdal kraftlyftingamaður, varð í dag Íslandsmeistari í bekkpressu. Sigfús tvíbætti Íslandsmetið, með 300 kg og svo 305 kg. Sigfús vann með því bæði +120 kg flokkinn og stigakeppnina, en í kraftlyftingum er keppt eftir formúlu sem gerir öllum kleift að keppa innbyrðis.

 

Einnig fór fram alþjóðleg stiga keppni í tengslum við RIG, og varð Sigfús þar í öðru sæti, á eftir norðmanninum Alastair Mccol sem tók 310 kg. Sigfús keppti fyrir hönd Kraftlyftingafélagsins Víkings frá Ísafirði, og er þetta í fyrsta skipti sem Ísfirðingur keppir í kraftlyftingum innan ÍSÍ, og árangurinn verður því að teljast ánægjulegur. Sigfús telur sig eiga meira inni og er stefnan sett á næsta mót, sem er Íslandsmótið í kraftlyftingum, þar sem keppt er í öllum greinum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.

 

Kraftlyftingafélagið Víkingur mun á næstu vikum byrja skipulagðar æfingar fyrir þá sem hafa áhuga á að æfa og kynnast íþróttinni. Einnig verður í boði skipulagðar æfingar fyrir unglinga og börn niður í um 10 eða 12 ára aldur.

 

Myndband af lyftunni má nálgast hér á vef mbl.is

%foreign_more%
ruv.is | 14/01/2013 Kl. 12:22

Íslensk veiðihjól

Fyrirtækið Fossadalur á Ísafirði framleiðir veiðihjól og er eini íslenski veiðihjólaframleiðandinn. Steingrímur Einarsson framkvæmdarstjóri Fossadals segir að hjólin séu seld í um 20 verslunum, þar af þremur hér á landi. Stærsti markaðurinn fyrir veiðihjólin http://www.einarsson.com/ sé í Þýskalandi. Hann segir að síðustu ár hafi að miklu leyti farið í þróunarvinnu en nú sé unnið á fullu í markaðsstarfi. Stefnt sé á að hjólin verði komin í 50 verslanir í Evrópu og Rússlandi í ár. Þá verði fljótlega byrjað að vinna markaðsstarf í Bandaríkjunum og Kanada.

 

%foreign_more%

Veðrið á Vestfjörðum

Færð á vegum

Samferða til Vestfjarða

VantarFráTilDags
Far Ísafjörður Reykjavík 25. maí.
Farþ. Reykjavík Ísafjörður 25. maí.
Farþ. Ísafjörður Reykjavík 25. maí.
Farþ. Hólmavík Reykjavík 25. maí.
Far Reykjavík Þingeyri 29. maí.
Far Ísafjörður Reykjavík 29. maí.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir