Málþing um samgöngumál á Vestfjörðum
Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat
Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, er búin að snúa við ákvörðun forvera sín, Ögmundar Jónassonar, um Teigsskóg, og hefur heimilað vegamálastjóra að setja vegagerð um þessa umdeildu leið í nýtt umhverfismat.
„Bergið er alveg kynngimagnað“
„Bergið er alveg kynngimagnað,“ segir Guðni Páll Viktorsson, kajakræðari sem staddur er í Breiðuvík á Vestfjörðum og hefur nú róið tæplega helminginn af leiðinni umhverfis Ísland. Gísli hóf ferð sína 30. apríl síðastliðinn og hefur lent í ýmsum ævintýrum síðan. Honum brá svo sannarlega í brún í morgun þegar grjóthnullungar hrundu úr Látrabjargi þar sem hann var við siglingu.
Fækka malarköflunum til Patreksfjarðar um helming
Stærsta verk sem Vegagerðin hefur ráðist í eftir hrun, þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, er komið í fullan gang. Þegar verkinu lýkur fækkar síðustu malarköflunum milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um helming. Vegfarendur losna þarna við fjórar einbreiðar brýr, snjóþunga fjarðabotna, krappar beygjur, blindhæðir og síðast en ekki síst: 24 kílómetra langan malarveg.
Markaðsdeild Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsó...
Markaðsdeild Fjórðungssambands Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum til markaðssetningar á viðburðum og hátíðum á Vestfjörðum árið 2013. Styrkirnir eru fjármagnaðir úr Sóknaráætlun landshluta. Styrkjunum er ætlað að vekja athygli á þeim hátíðum og viðburðum sem þegar eru haldnar á Vestfjörðum og styðja við ímynd Vestfjarða.
Vinsælar fréttir
- Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat
- Málþing um samgöngumál á Vestfjörðum
- Skynsamlegt að kjósa snemma
- Gaman er liggja og lesa í Skúrnum
- Markaðsdeild Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum frá hátíðum og viðburðum á Vestfjörðum fyrir 2013
- Hætta á skriðuföllum í Kjálkafirði
- Kynning á aðal- og deiliskipulagsvinnu
- Sumarstarf á Bíldudal
- Langar þig í nám?
- Kynningarfundur vegna breytingar aðalskipulags
- Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum
- Framleiðendur á Vestfjörðum eiga rétt á 20% flutningsjöfnun
Dulmagnað kuml á Vestfjörðum
Stuttmyndin Kuml var frumsýnd um helgina í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Myndin gerist í Breiðuvík og á Látrabjargi og fjallar um rithöfund sem fer þangað eftir að þar finnast mannabein. Sú ferð verður þó talsvert afdrifaríkari en hann reiknaði með í upphafi. Þetta er sum sé dulmögnuð vestfirsk spennumynd. Eyþó Jóvinsson framleiðandi myndarinnar sagði hlustendum Síðdegisútvarpsins betur frá.
%foreign_more%Gaman er liggja og lesa í Skúrnum
Fimmtudaginn 6. júní mun Sigurður Skúlason, leikari, troða upp í Skúrnum á Húsinu Ísafirði. Leikarann þarf vart að kynna en hann hefur leikið í fjölmörgum leikritum og bíómyndum í gegnum áratugina. Hann er einmitt staddur hér vestra við kvikmyndatöku á nýrri íslenskir mynd. Sigurður er í fremstu röð þeirra er flytja texta enda hefur hann lesið inn á fjölmargar hljóðbækur og starfað mikið fyrir útvarpið.
Á fimmtudaginn kl.20 mun Sigurður flytja bókmenntaperlur einsog honum einum er lagið í dagskrá er hann nefnir Gaman er að liggja og lesa. Dagskráin hefur verið flutt víða við úrvals góðar viðtökur. Aðgangseyrir er aðeins krónur 1.000.-
Gaman er að geta þess að sama kveld verður vestfirska stuttmyndin Kuml sýnd í Ísafjarðarbíói. Sýningin hefst kl.19 og er því upplagt að gera mikið úr kveldinu og mæta í framhaldinu af Kuml, sem er 35. mín. löng, í Skúrinn á Húsinu og hlýða á þessa einstöku dagskrá Sigurðar Skúlasonar Gaman er að liggja og lesa.
%foreign_more%Rak logandi sígarettu í trýnið á Nökkva
Ölvaður maður um þrítugt veittist að fíkniefnaleitarhundinum Nökkva og rak logandi glóð í trýnið á honum við félagsheimilið á Patreksfirði aðfaranótt sunnudags. Nökkva var mjög brugðið við árásina og var óstarfhæfur um stund. Að sögn lögreglunnar á Patreksfirði hafði Nökkvi fundið eitthvað af fíkniefnum fyrr um kvöldið.
%foreign_more%Kjálkafjarðarógnin kallar á breytingu vegarins
Vegagerðin neyðist til að endurhanna Vestfjarðaveg um skriðuna miklu sem féll í Kjálkafirði í vor. Fjarlægja þarf gríðarlegt efnismagn úr fjallshlíðinni til að draga úr þeirri ógn sem hún veldur vegfarendum. Það var þann 23. apríl þegar starfsmenn Suðurverks voru að vinna að gerð nýs vegar sem 220 þúsund rúmmetrar af grjóturð hrundu niður fjallshlíðina og lokuðu veginum. Hrikaleg björg, sem sjá mátti í frétt Stöðvar 2 í kvöld, komu niður með skriðunni, 60-100 tonna steinar, að sögn Gísla Eysteinssonar, verkstjóra hjá Suðurverki.
%foreign_more%Ný söguleg vestfirsk stuttmynd frumsýnd í Skjaldborg
Stuttmyndin Kuml verður frumsýnd á laugardaginn í Skjalborgarbíói á Patreksfirði. Myndin Kuml gerist í Breiðavík og á Látrabjargi og fjallar um rithöfund sem fer þangað eftir að þar finnast mannabein. Sú ferð verður þó talsvert afdrifaríkari en hann reiknaði með í upphafi. - Dulmögnuð Vestfirsk spennumynd.
Kuml er sjálfstætt framhald stuttmyndarinnar Gláma, sem var fumsýnd fyrir ári síðan við mjög góðar viðtökur. Myndirnar eru hluti af vestfirskum stuttmyndaþríleik sem gerist í þremur gömlum héraðsskólum á Vestfjörðum. Gláma á Núpi í Dýrafirði, Kuml í Breiðuvík og lokamyndin Salt gerist í Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Tökur á Salt munu fara fram í haust.
Vestfirska kvikmyndafélagið Gláma stendur á bakvið gerð þríleiksins og er hugmynd að skrifa sögu inn í þrjá gamla héraðsskóla á Vestfjörðum, sögurnar eru innblásnar af staðarháttum hvers staðar fyrir sig og upphafspunkturinn byggist á gömlum þjóðsögum frá héraðsskólunum. - Sögulegar Vestfirskar stuttmyndir.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Elfar Logi Hannesson og Þórunn Guðlaugsdóttir. Meðal auka leikara má nefna; Svavar Knút, Kristinn Hrafnsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sigurð Skúlason, Vilborgu Davíðsdóttir og Árna Salomonsson.
Leikstjóri er Ársæll Níelsson og myndataka og klipping er í höndum Baldurs Páls Hólmgeirssonar og framleiðandi er Eyþór Jóvinsson. Myndin er tæplega 40 mínútur að lengd.
Kuml verður eins og áður segir frumsýnd í Skjaldborgarbíói, laugardaginn 1. júní kl 19:00. Þá verða einnig tvær sýningar í Ísafjarðarbíói: Fimmtudaginn, 6. júní kl 19:00 og laugardaginn 8. júní kl 22:00. Fyrir sýninguna 8. júní verður Gláma sýnd á undan Kumli og gefst þar gestum tækifæri á að sjá þær báðar í einu. En Gláma var sýnd fyrir fullu húsi um páskana 2012.
Menningaráð Vestfjarðar styrkir gerð vestfirska þríleiksins, Gláma, Kuml og Salt.
Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði
Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn. Cand. theol. Arnaldur Máni Finnsson
Cand. theol. Elín Salomé Guðmundsdóttir
Cand. theol. María Guðrún Gunnlaugsdóttir
Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts í Vestfjarðaprófastsdæmi.
Embættið veitist frá 1. júní.
%foreign_more%
Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt
Sérstök vakt verður við framhlaupið í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum í dag og síðan verður veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta á laugardagsmorgun. Á laugardag verður áfram vakt að deginum til og aðstæður metnar að nýju. Ástæða þessa er úrkoman sem verður á svæðinu í dag sem eykur hættuna á frekari skriðuföllum.
Til þess gæti komið fyrirvaralítið að loka þurfi veginum og eins verða aðstæður metnar í fyrramálið, hafi áhættan aukist um nóttina gæti komið til þess að ekki yrði hægt að opna veginn fyrr en síðar en klukkan átta.
%foreign_more%Ástandið ógn við atvinnuöryggi
Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ástand sé beinlínis ógn við atvinnuöryggi íbúa.
%foreign_more%Breyta yfirbragði óraskaðs svæðis
Skipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif framkvæmda við gerð jarðganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar verði sjónræn eðlis og áhrif á landslag.Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum „Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu háar fyllingar og áberandi skeringar beggja megin gangamunnanna, auk munnanna sjálfra, koma til með að breyta yfirbragði þessa óraskaða svæðis og hafa talsverð neikvæð, óafturkræf áhrif á landslag svæðisins. Sömu leiðis veglagning í fjöru í Dýrafirði sem jafnframt mun hafa staðbundin neikvæð áhrif á búsvæði þeirra fuglategunda sem halda til í fjörunni, m.a. rauðbrysting,“ segir í álitinu.
%foreign_more%Búið að opna leiðina um Kjálkafjörð
Vestfjarðavegur nr. 60 verður opinn um Kjálkafjörð í dag en lokast aftur um miðnætti aðfaranótt sunnudags 19. maí um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
%foreign_more%Hætta á skriðuföllum í Kjálkafirði
Vestfjarðarvegur nr. 60 verður lokaður í Kjálkafirði frá miðnætti aðfaranótt laugardagsins 18. maí um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum,samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Áætlað er að um 150 þúsund rúmmetrar af mold og grjóti hafi fallið á veginn þann 23. apríl sl. og þykir mildi að ekki fór verr því vegagerðarmenn voru að störfum þegar hún féll.
%foreign_more%Vilborg gengur með Gísla í Uppsölum
Fjallagarpurinn Vilborg Arna Gissurardóttir er nú stödd í um 4000 metra hæð í hlíðum hæsta fjalls N-Ameríku, Denali sem er jafnframt fyrsti áfangi í leiðangri hennar á hæstu tinda allra heimsálfa. Meðal þess sem hún ber með sér á tindinn er bókin Eintal, með ljóðum og hugleiðingum Gísla í Uppsölum.
%foreign_more%Með átröskun og berst gegn fordómum: „Fékkstu vinnu í sjoppu í spar...
Ung framhaldsskóladama lætur ekki fordóma og aðkast aftra sér frá því að vekja fólk til vitundar um helvíti átröskunar. Hún var spurð hvort hún fengi vinnu í sjoppu af því að eigandinn gæti treyst því að hún æti ekki á sig gat. Jóhanna Berta er sjálf með átröskun og hefur þrátt fyrir ungan aldur lagt sitt af mörkum með greinaskrifum til vitundarvakningar um slíka kvilla.
%foreign_more%Sif Huld ráðin verkefnisstjóri Byggðasamlags um málefni fatlaðs fól...
Sif Huld Albertsdóttir þroskaþjálfi hefur verið ráðin verkefnisstjóra Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks (BsVest). Stjórn BsVest, sem jafnframt er stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga, samþykkti ráðningu Sifjar fyrir skömmu. Sif Huld er 27 ára Ísfirðingur, þroskaþjálfi að mennt, auk þess sem hún er iðnmenntuð. Hún hefur veitt forstöðu Hæfingarstöðinni Hvestu hjá Ísafjarðarbæ í fæðingarorlofi forstöðumanns, auk þess að hafa starfað innan félagsþjónustu Ísafjarðarbæjar með námi.
Sif tekur við starfi verkefnisstjóra úr höndum Arnheiðar Jónsdóttur, sem sinnt hefur því frá stofnun BsVest í ársbyrjun 2011. Arnheiður hefur tekið við nýju starfi í félagsþjónustu Vesturbyggðar. Í tilkynningu þakkar stjórn BsVest Arnheiði Jónsdóttur mikilsvert starf við uppbyggingu og þróun starfsemi BsVest, um leið og hún býður Sif Huld velkomna til starfa. Í kjölfar þessara breytinga flyst starfsstöð verkefnisstjóra frá Patreksfirði til Ísafjarðar, í Vestrahúsið Árnagötu 2-4, þar sem skrifstofur Fjórðungssambands Vestfirðinga eru. Sími og netfang verkefnastjóra verður óbreytt.
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:15:00
NNV 2 m/s, 15,2 °C - Gemlufallsheiði kl:15:00
NNA 6 m/s, 12,0 °C - Patreksfjörður kl:15:00
SA 2 m/s, 11,0 °C - Reykhólar kl:15:00
NA 6 m/s, 14,2 °C - Tálknafjörður kl:15:00
NV 6 m/s, 13,0 °C
- Bolungarvík kl:15:00
N 2 m/s, 10,6 °C - Flateyri kl:15:00
VNV 5 m/s, 10,7 °C - Ísafjörður kl:15:00
A 8 m/s, 11,3 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:15:00
NNA 7 m/s, 5,6 °C - Súðavík kl:15:00
NNA 7 m/s, 12,2 °C


Meira







