Dulmagnað kuml á Vestfjörðum
Markaðsdeild Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsó...
Markaðsdeild Fjórðungssambands Vestfirðinga auglýsir eftir styrkumsóknum til markaðssetningar á viðburðum og hátíðum á Vestfjörðum árið 2013. Styrkirnir eru fjármagnaðir úr Sóknaráætlun landshluta. Styrkjunum er ætlað að vekja athygli á þeim hátíðum og viðburðum sem þegar eru haldnar á Vestfjörðum og styðja við ímynd Vestfjarða.
Dulmagnað kuml á Vestfjörðum
Stuttmyndin Kuml var frumsýnd um helgina í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Myndin gerist í Breiðuvík og á Látrabjargi og fjallar um rithöfund sem fer þangað eftir að þar finnast mannabein. Sú ferð verður þó talsvert afdrifaríkari en hann reiknaði með í upphafi. Þetta er sum sé dulmögnuð vestfirsk spennumynd. Eyþó Jóvinsson framleiðandi myndarinnar sagði hlustendum Síðdegisútvarpsins betur frá.
Gaman er liggja og lesa í Skúrnum
Fimmtudaginn 6. júní mun Sigurður Skúlason, leikari, troða upp í Skúrnum á Húsinu Ísafirði. Leikarann þarf vart að kynna en hann hefur leikið í fjölmörgum leikritum og bíómyndum í gegnum áratugina. Hann er einmitt staddur hér vestra við kvikmyndatöku á nýrri íslenskir mynd. Sigurður er í fremstu röð þeirra er flytja texta enda hefur hann lesið inn á fjölmargar hljóðbækur og starfað mikið fyrir útvarpið.
Á fimmtudaginn kl.20 mun Sigurður flytja bókmenntaperlur einsog honum einum er lagið í dagskrá er hann nefnir Gaman er að liggja og lesa. Dagskráin hefur verið flutt víða við úrvals góðar viðtökur. Aðgangseyrir er aðeins krónur 1.000.-
Gaman er að geta þess að sama kveld verður vestfirska stuttmyndin Kuml sýnd í Ísafjarðarbíói. Sýningin hefst kl.19 og er því upplagt að gera mikið úr kveldinu og mæta í framhaldinu af Kuml, sem er 35. mín. löng, í Skúrinn á Húsinu og hlýða á þessa einstöku dagskrá Sigurðar Skúlasonar Gaman er að liggja og lesa.
Ný söguleg vestfirsk stuttmynd frumsýnd í Skjaldborg
Stuttmyndin Kuml verður frumsýnd á laugardaginn í Skjalborgarbíói á Patreksfirði. Myndin Kuml gerist í Breiðavík og á Látrabjargi og fjallar um rithöfund sem fer þangað eftir að þar finnast mannabein. Sú ferð verður þó talsvert afdrifaríkari en hann reiknaði með í upphafi. - Dulmögnuð Vestfirsk spennumynd.
Kuml er sjálfstætt framhald stuttmyndarinnar Gláma, sem var fumsýnd fyrir ári síðan við mjög góðar viðtökur. Myndirnar eru hluti af vestfirskum stuttmyndaþríleik sem gerist í þremur gömlum héraðsskólum á Vestfjörðum. Gláma á Núpi í Dýrafirði, Kuml í Breiðuvík og lokamyndin Salt gerist í Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Tökur á Salt munu fara fram í haust.
Vestfirska kvikmyndafélagið Gláma stendur á bakvið gerð þríleiksins og er hugmynd að skrifa sögu inn í þrjá gamla héraðsskóla á Vestfjörðum, sögurnar eru innblásnar af staðarháttum hvers staðar fyrir sig og upphafspunkturinn byggist á gömlum þjóðsögum frá héraðsskólunum. - Sögulegar Vestfirskar stuttmyndir.
Með aðalhlutverk í myndinni fara Elfar Logi Hannesson og Þórunn Guðlaugsdóttir. Meðal auka leikara má nefna; Svavar Knút, Kristinn Hrafnsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sigurð Skúlason, Vilborgu Davíðsdóttir og Árna Salomonsson.
Leikstjóri er Ársæll Níelsson og myndataka og klipping er í höndum Baldurs Páls Hólmgeirssonar og framleiðandi er Eyþór Jóvinsson. Myndin er tæplega 40 mínútur að lengd.
Kuml verður eins og áður segir frumsýnd í Skjaldborgarbíói, laugardaginn 1. júní kl 19:00. Þá verða einnig tvær sýningar í Ísafjarðarbíói: Fimmtudaginn, 6. júní kl 19:00 og laugardaginn 8. júní kl 22:00. Fyrir sýninguna 8. júní verður Gláma sýnd á undan Kumli og gefst þar gestum tækifæri á að sjá þær báðar í einu. En Gláma var sýnd fyrir fullu húsi um páskana 2012.
Menningaráð Vestfjarðar styrkir gerð vestfirska þríleiksins, Gláma, Kuml og Salt.
Vinsælar fréttir
- Ný söguleg vestfirsk stuttmynd frumsýnd í Skjaldborg
- Gaman er liggja og lesa í Skúrnum
- Hjólabókin um Vesturland er komin út hjá Vestfirska forlaginu
- Vestfirsk leiklist – sýning um leiklist á Ísafirði og Vestfjörðum
- Niðurstöður vegna styrkumsókna um miðjan apríl
- Rómantísk mynd af mótorhjólamönnum
- Pólsk kvikmyndhátíð á Ísafirði
- Dulmagnað kuml á Vestfjörðum
- Skáldið á Þröm fékk fullt hús
- Sumardagurinn fyrsti í Edinborgarhúsinu 19. apríl kl. 14-16
- Ljósmyndanámskeið fyrir 9-12 ára börn í sumar
- Strandastelpa - frá Yangjiang norður í Trékyllisvík
Lokahátíð og skólaslit Tónlistarskólans í kvöld
Lokahátíð Tónlistarskóla Ísafjarðar verður í Ísafjarðarkirkju í kvöld klukkan 20. Skólaslit Tónlistarskólans bjóða ætíð upp á vönduð tónlistaratriði frá nemendum skólans og eru allir velunnarar skólans velkomnir, auk nemenda og foreldra. Veitt verða viðurkenningar vegna góðs árangurs og ástundunar og kórar, strengjasveit, hljóðfæraleikarar og söngvarar úr hópi nemenda leika fyrir gesti. Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri Tónlistarskólans fer í námsleyfi næsta vetur og mun Ingunn Ósk Sturludóttir söngkona og söngkennari taka við stjórn skólans næsta vetur.
%foreign_more%Pólsk kvikmyndhátíð á Ísafirði
Pólska kvikmyndahátíðin á Ísafirði var sett í gær, í fyrsta skipti en hún stendur yfir til 28. maí. Sex kvikmyndagerðarmenn frá Lódz, þekktasta kvikmyndaskóla Póllands, eru gestir hátíðarinnar og kynna sín verk auk þess sem nokkrar vinsælustu myndir síðasta árs og nokkrar stuttmyndir frá Póllandi verða sýndar. Arnaldur Elísabetar Finnsson framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir opnunarhátíðina í Edinborgarhúsinu hafa verið veglega. Michal Gerbatowski fyrsti ritari pólska sendiráðsins á Íslandi, færði Bókasafni Ísafjarðarbæjar veglega bókagjöf og sýnd voru æskuverk hinna heimsþekktu og margverðlaunuðu pólsku kvikmyndaleikstjóra Krystofs Kieslowskis og Romans Polanskis. Arnaldur segir fjölmörg samfélagslega þenkjandi fyrirtæki hafa styrkt hátíðina en á sérstakar sýningar verður aðgangur ókeypis og opinn öllum bæjarbúum, óháð uppruna. Menningarfélagið Rætur stendur að hátíðinni með stuðningi Menningarráðs Vestfjarða, Kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík Shorts and Docs Festival og Ísafjarðarbíós. Aðalmynd hátíðarinnar var sýnd í gærkvöldi, en það er kvikmyndin Your are God eða , sem notið hefur mikilla vinsælda.
%foreign_more%Eurovision innblástur Björgunarsveitar Flateyrar
Um næstu helgi verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt. Björgunarsveit Flateyrar hefur farið heldur óvenjulega leið til þess að auglýsa þá skemmtidagskrá sem fram fer á Flateyri um sjómannadagshelgina (eða á helginni eins og þeir segja sjálfir). Flateyringar eru þekktir fyrir mikinn áhuga á Eurovision og sóttu innblástur sinn í þetta sinn frá myndbandi Eyþórs Inga hinum gæðalega og fallega víkingi þar sem hann söng framlag okkar íslendinga í ár “Ég á líf”. Sjón er sögu ríkari.
%foreign_more%Rómantísk mynd af mótorhjólamönnum
Það er olíulykt í loftinu í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Drunur úr mótorhjólum berast úr litlu hliðarherbergi og í miðjum salnum stendur nafnlausi hesturinn – sérsmíðað mótorhjól sem ljósmyndarinn Spessi ferðaðist á um Bandaríkin og sýningin dregur nafn sitt af. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og hefur vakið talsverða athygli. Spessi flutti til Bandaríkjanna, bjó í Arkansas, Tennessee, Mississippi og víðar og fékk fágæta innsýn í heim þeirra sem ferðast á vélfákum. Í texta sem fylgir sýningunni segir hann um að ræða eins konar þjóðfræðilega úttekt á þessum sérstaka „ættbálki“ sem mótorhjólamenn eru.
%foreign_more%Funi heldur tónleika í Einarshúsi í kvöld
Dúettinn Funi heldur tónleika í Einarshúsi í Bolungarvík í kvöld, 22. maí og hefjast þeir klukkan 21. Þar munu þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster leika af nýjum hljómdiski sem ber heitið FLÚR og inniheldur lítt þekkta, gullfallega, íslenska þjóðlagatónlist. Á diskinum Flúr er að finna nokkur ný lög eftir Báru sem fæst hafa komið út fyrr, en flest lögin eru þó kvæðalög, tvísöngslög og sálmalög sem fundist hafa í ýmsum gömlum heimildum og eru flutt í útsetningum Báru og Chris. Textarnir eru bæði nýir og gamlir, allt frá þjóðkvæðum og sálmum frá 16. öld til kvæða eftir Grím Lárusson frá Grímstungu, föður Báru. Disknum fylgir 32 síðna bæklingur á íslensku og ensku. Bára og Chris syngja bæði og auk þess leikur Bára á finnskt kantele, en Chris spilar á gamla íslenska hljóðfærið, langspil, enskt hammer dulcimer og á gítar. Með þeim koma einnig fram Birgir Bragason sem leikur á kontrabassa, Lárus Halldór Grímsson á klarínett, Andri Eyvindsson á saxafón og söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson. Dúettinn Funi leikur í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði annað kvöld, 23.maí klukkan 20. Aðgangseyrir á tónleikana eru 1500 krónur.
%foreign_more%Vestfirskir fimm aura brandarar
Það er hreinasta lífsnauðsyn að halda gleðinni, og þá helst með báðum höndum. Þetta er mat Sveinbjörns Hjálmarssonar, eða Simba verslunarmanns, og samstarfskvenna hans í Hafnarbúðinni á Ísafirði. Mitt í nýafstöðnu kosningafári vöktu skopmyndir sem Simbi hefur tekið og sett á facebook-síðu sína athygli. Simbi viðurkennir fúslega að verð brandaranna sé frekar talið í aurum en krónum þó talsverð vinna liggi í framkvæmdinni. Helgi Seljan og Jóhannes Jónsson litu inn í Hafnarbúðina.
%foreign_more%Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
VORÞYTUR lúðrasveitanna í Ísafjarðarkirkju
Vorið er uppskeruhátíð tónlistarnema og að venju stendur Tónlistarskóli Ísafjarðar fyrir mörgum nemendatónleikum í maí.
Tónleikaröð skólans hefst á miðvikudagskvöld 8.maí með hinum árlegu tónleikum lúðrasveita skólans í Ísafjarðarkirkju. Tónleikarnir eru haldnir undir yfirskriftinni VORÞYTUR enda má segja að með þeim séu sveitirnar að blása vorið í bæinn. Á tónleikunum koma fram þrjár lúðrasveitir: Skólalúðrasveit T.Í. sem skipuð er nemendum á grunnskólaaldri sem stunda nám við skólann, Miðsveitin sem er skipuð lengra komnum nemendum og Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar sem er skipuð blásurum á ýmsum aldri sem margir hafa mikla reynslu í farteskinu. Á tónleikunum kemur einnig fram hópur nemenda í 5.bekk Grunnskólans á Ísafirði, sem hafa tekið þátt í sérstöku samvinnuverkefni skólanna síðustu mánuði, þar sem allir 5.bekkingar fengu kennslu á blásturshljóðfæri í hópkennslu. Verkefnið var styrkt af orkubúi Vestfjarða.
Dagskráin á tónleikunum er í léttari kantinum, þekkt erlend dægurlög eftir Cobain, Coldplay, Adele o.fl. en einnig íslensk lög eftir Gunnar Þórðarson og Sigfús Halldórsson.
Það er hinn kraftmikli Eistlendingur Madis Mäekalle sem hefur undirbúið þessa tónleika og stjórnar öllum sveitunum og hefur einnig útsett og aðlagað flest lögin.
Aðgangseyrir að tónleikunum er kr. 1.000 en kr.500 fyrir börn 12 ára og yngri og rennur hann í sjóð lúðrasveitanna.
Vorhátíð Finnbogastaðaskóla
Vorhátíð Finnbogastaðaskóla verður haldinn hátíðleg síðasta vetrardag miðvikudaginn 24. apríl klukkan 18:00.,í Félagsheimilinu Árnesi Trékyllisvík. Boðið verður upp á góða skemmtun, mat og drykk á góðu verði. Allir eru hjartanlega velkomnir. Segir í tilkynningu frá nemendum og starfsfólki Finnbogastaðaskóla.
%foreign_more%Matur og menning á sumardaginn fyrsta
Á næstkomandi fimmtudag eða á sumardaginn fyrsta verður þess minnst í Bolungarvík að 100 ár eru liðin frá fræknu björgunarafreki sem átti sér stað hér rétt fyrir utan Víkina í aftakaveðri en þá bjargaði Bjarni Bárðarson formaður á Dúfunni allri áhöfn á mótorbátnum Máfinum við skelfilegar aðstæður.
Af því tilefni verður flutt leikritið „Hugprúði Bolvíkingurinn“ í Einarshúsi en þar verður varpað ljósi á manninn Bjarna Bárðarson sem aldrei brást í mannraunum og viðburðum í lífi hans gerð skil eins og frekast er kostur. Er það Ragna Jóhanna Magnúsdóttir sem samdi handritið og kryddaði það góðlátlegu gríni og smurði svo smá skáldskap ofan á allt saman til að lífga upp á atburði.
Leikmyndasmiðurinn Jón Bjarni Geirsson hefur smíðan bátslíkan sem búið er að koma fyrir í Einarshúsi en aðrir leikmunir eru fengnir úr húsinu sjálfu enda hýsir Einarshúsið gamla muni sem koma að góðum notum í sýningu sem þessari.
Aðalhlutverk eru í höndum félaga úr Leikfélagi Bolungarvíkur, þeirra Gunnars Sigurðssonar, Róberts Jacks, Guðnýjar Hildar Magnúsdóttur og Höllu Signýjar Kristjánsdóttur sem jafnframt er leikstjóri. Benedikt Sigurðsson mun frumflytja vals sem hann hefur samið sem ber heitið „Tregabönd“ og aðstoðar þannig við túlkun á undirleik Bjarna á balli í Stúkuhúsinu en hann var liðtækur á nikkuna í denn.
Frumsýning er á sumardaginn fyrsta kl 20:00 yfir kvöldverði og aðeins eru örfá sæti laus. Verkið verður svo sýnt af og til í sumar og sýningar auglýstar sérstaklega.
Menningarráð Vestfjarða, Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkur og Sparisjóður Bolungarvíkur styrkja uppsetningu verksins.
%foreign_more%Framlög Menningarráðs Vestfjarða til menningarstarfsemi 2013
Menningarráð Vestfjarða hefur nú lokið við úthlutun styrkja fyrir árið 2013 og eru niðurstöður nokkuð fyrr á ferðinni en síðustu ár. Umsóknir til ráðsins hafa aldrei verið fleiri en nú eða 160 samtals. Jafnframt hafa gæði umsókna líklega aldrei verið meiri en nú. Margvísleg menningarstarfsemi fær stuðning og er ánægjulegt að sjá þá grósku og hugmyndaauðgi sem einkennir menningarlífið á Vestfjörðum.
%foreign_more%Vorboðinn ljúfi: Kór Flensborgarskólans syngur á Vestfjörðum
Kór Flensborgarskóla verður á ferð um Ísafjarðarsýslu á næstu helgi. Kórinn heldur tónleika í Ísafjarðarkirkju á laugardaginn klukkan 16, í Félagsheimilinu á Þingeyri á sunnudag klukkan 13 og í Félagsheimilinu í Bolungarvík sunnudag klukkan 16. Stjórnandi kórsins er Hrafnhildur Blomsterberg. Aðgangseyrir er 1000 krónur, en frítt fyrir námsmenn.
%foreign_more%Maskadagur og þrif í Barmahlíð fyrir 25 ára afmælið
Misjafnt er eftir landshlutum hvenær „maskadagurinn“ er haldinn (d. maske: gríma) og hvaða venjur fylgja þeim degi á hverjum stað. Barmahlíð á Reykhólum á sinn eiginn maskadag auk hinna. Í dag var starfsfólkið í Barmahlíð í alls konar múnderingum og með alls konar grímur og allir í þrifum.
„Já, þetta er bara eitthvað til gamans. Við reynum alltaf fyrir Barmahlíðardaginn að taka sérlega vel til og flikka svolítið upp á heimilið. Núna erum við að reyna að vera alveg sérstaklega hátíðleg til að halda upp á 25 ára afmælið. Annars má segja að þetta sé árlegur tiltektardagur fyrir Barmahlíðardaginn,“ segir Þuríður Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri.
Núna þann 11. mars voru liðin 25 ár frá því að fyrsta heimilisfólkið fluttist inn í Barmahlíð. Hins vegar hefur sú hefð skapast að halda Barmahlíðardaginn hátíðlegan vor hvert á sumardaginn fyrsta. Hann ber núna upp á 25. apríl og þá verður sérstakur 25 ára afmælisfagnaður í Barmahlíð.
Því mætti skjóta hér inn, að á sumardaginn fyrsta er líka fimm ára afmæli Reykhólavefjarins.
Myndirnar voru teknar í Barmahlíð í dag. Smellið á þær að venju til að stækka.
%foreign_more%Burtfarartónleikar Árnýjar Bjarkar í Háteigskirkju
Sveitungar og samferðamenn, nær og fjær athugið! Föstudagskvöldið 19. apríl næstkomandi, mun sópransöngkonan Árný Björk Björnsdóttir frá Melum í Trékyllisvík halda burtfarartónleika í Háteigskirkju. Munu tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt og snert verður á ýmsum gullmolum tónlistarsögunnar og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Á tónleikunum koma einnig fram þær Kristín Anna Guðmundsdóttir sópran og Ellen Björg Björnsdóttir. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir hjartanlega velkomnir! Að tónleikunum loknum verður gestum boðið að þiggja veitingar í sal kirkjunnar.
%foreign_more%Sigursælir Ísfirðingar á Nótunni
Segja má að Tónlistarskóli Ísafjarðar hafi verið sópað til sín verðlaununum á NÓTUNNI, uppskeruhátíð íslenskra tónlistarskóla, en Lokahátíð Nótunnar var haldin í Eldborgarsal Hörpu í gær, sunnudaginn 14.apríl. Bæði atriðin, sem fóru héðan frá skólanum, Skólakórinn og Hljómsveit píanónemenda, hlutu verðlaun, en alls voru 11 verðlaun veitt á hátíðinni. Veitt voru þrenn verðlaun í hverju námsstigi, grunn-, mið- og framhaldsstigi, 1 verðlaun fyrir besta atriðið á hátíðinni og loks sérstök ÍSMÚS-verðlaun sem Tónlistarsafn Íslands veitti fyrir atriði sérstaklega tengt íslenskum tónlistararfi. Sérstök valnefnd hefur það hlutverk að velja níu framúrskarandi atriði af þessum tvennum tónleikum og hreppa þau verðlaunagrip Nótunnar 2013. Valnefndina skipa að þessu sinni Arna Kristín Einarsdóttir, tónleikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Högni Egilsson, tónlistarmaður og Peter Máté, píanóleikari.
Skemmst er fá því að segja að Skólakórinn hlaut verðlaun fyrir samleik/samsöng í miðstigi og Hljómsveit píanónemenda Beötu Joó hlaut ÍSMÚS-verðlaunin. Þessi árangur ungu Ísfirðinganna vakti gífurlega athygli á þessum stærsta viðburði íslenskra tónlistarskóla, en þarna voru viðstaddir allir helstu forkólfar tónlistarmála í landinu með mennta- og menningarmálaráðherra í fararbroddi. Skólinn er ákaflega stoltur af árangri unga listafólksins og óskar þeim og kennurum þeirra sérstaklega til hamingju. Einnig er skólinn afar þakklátur öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum og stofnnum sem styrktu þau fjárhagslega til fararinnar. Stuðningsmenn ísfirsku ungmennannna fjölmenntu í Hörpuna í gær og hvöttu þau áfram, foreldrar og aðrir ættingjar, margir kennarar skólans fyrr og nú, gamlir nemendur, brottfluttir Ísfirðingar og aðrir sem staddir voru í Reykjavík og mættu bara til að styðja sitt fólk og svo mætti áfram telja. Klapp- og stuðningsliðið stóð sig svo vel á tónleikunum að margir höfðu á orði að það væri alveg einstakt og aðrir skólar mættu taka sér það til fyrirmyndar!
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:00:00
Logn 0 m/s, 7,4 °C - Gemlufallsheiði kl:00:00
NNA 1 m/s, 4,6 °C - Patreksfjörður kl:00:00
VSV 2 m/s, 6,8 °C - Reykhólar kl:00:00
A 6 m/s, 8,0 °C - Tálknafjörður kl:00:00
Logn 0 m/s, 5,8 °C
- Bolungarvík kl:00:00
Skýjað, NNA 1 m/s, 6,6 °C - Flateyri kl:00:00
NV 3 m/s, 7,0 °C - Ísafjörður kl:00:00
ANA 4 m/s, 7,4 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:00:00
N 3 m/s, 2,9 °C - Súðavík kl:00:00
SSA 2 m/s, 7,5 °C

Meira











