Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla
Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla
Núna um helgina fara fram æfingar í Torfnesi undir handleiðslu landsliðskvenna (meðal þeirra sem mætir er Hrafnhildur Skúladóttir) sem og unglingalandsliðsþjálfara í íþróttinni. Hörður og HSÍ bjóða upp á þessar æfingar í sameiningu og ekkert kostar að taka þátt. Um að gera að mæta og sjá hvað er í boði óháð því hvort viðkomandi æfi handbolta nú þegar eða ekki - og í kjölfarið er engin skuldbinding á að halda áfram eftir námskeiðið.
Gísli Súrsson fer heim í Súrnadal
Verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson hefur farið víða frá því leikurinn var frumsýndur árið 2005. Um allt Ísland fyrir vestan, austan, norðan og sunnan. Um Evrópu í Albaníu, Luxemburg og tvívegis í Þýskalandi. Enn er sýningin í landvinningum því í vikunni bætist Noregur í sýningarbókhald Gísla Súrssonar. Ekki nóg með það heldur er í raun verið að fara með Gísla heim því sýnt verður í hans fæðingarbæ nefnilega Súrnadal í Noregi.
Árlega er haldin mikil menningarveisla í Súrnadal í Noregi sem nefnist Varsöghelga. Þar er boðið uppá menningu og listir alla daga. Leikritið um Gísla Súrsson verður sýnt tvívegis á þessari hátíð sem fram fer í þessari viku. Einnig verða sýnd brot og kynningar á leikverkinu á hátíðinni. Það verður sannarlega gaman að sýna þessa einstöku sýningu okkar í heimahögum sögupersónunnar. Nú eigum við bara eftir að sýna í Hergilsey þá höfum við sýnt Gísla á öllum helstu sögustöðum þess Súra.
Guðni Páll eflist við hverja raun
Kajakræðarinn Guðni Páll Viktorsson fékk á sig brot og tognaði á baki er hann var staddur utan við Meðallandssand á miðvikudaginn og verður því næstu tvo dagana í sjúkraþjálfun. Að því búnu vonast hann til þess að geta haldið áfram för sinni hringinn í kringum landið.
Eva Margrét var frábær í Svíþjóð
Eva Margrét sannaði hvers vegna hún var valin íþróttamður Ísafjarðarbæjar á norðurlandamóti U-16 kvenna sem lauk um helgina. Stelpurnar höfnuðu í fjórða sæti eftir hörkuleik gegn Danmörk um þriðja sætið, en liknum lauk með tveggja stiga sigri dönsku stúlknanna.
Eva var næststigahæsti leikmaður mótsins í 16 ára flokki kvenna með 15,8 stig að meðaltali í leik og þá var hún þriðja frákastahæst á mótinu með 8,4 fráköst að meðaltali í leik. Þetta er frábær árangur hjá stúkunni okkar og eru allir í skýjunum yfir hennar framgöngu og eru stelpurnar í þessum árgangi í mikilli framför.
Vinsælar fréttir
- Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla
- BEIN ÚTSENDING: BÍ/Bolungarvík - Þróttur R.
- BEIN ÚTSENDING: BÍ/Bolungarvík - KA
- Bestur í 1. deild: Eitt besta markið á ferlinum
- Bein útsending frá KR-TV á Edinborg-Bistro-Bar
- Myndband: Fossavatnsgangan 2012
- Dr. BÆK mætir á Ísafjörð
- BÍ/Bolungarvík mætir Íþróttafélagi Hafnarfjarðar
- Bein lýsing frá Breiðablik - BÍ/Bolungarvík í kvöld
- Fótboltamót HSS og Hólmadrangs
- BÍ/Bolungarvík fær fjóra erlenda leikmenn á reynslu
- Eric Olson bætist í góðan þjálfarahóp í æfingabúðunum
Borgunarbikarinn: BÍ/Bolungarvík burstaði Augnablik
Einn leikur var á dagskrá í annarri umferð Borgunarbikarsins í dag en BÍ/Bolungarvík sigraði Augnablik 7-1 á gervigrasvellinum á Ísafirði. BÍ/Bolungarvík leiddi 4-0 eftir 21 mínútu en sigur liðsins var aldrei í hættu. BÍ/Bolungarvík verður því í pottinum þegar dregið verður í 32-liða úrslitin síðar í vikunni.
BÍ/Bolungarvík 5 - 0 Augnablik
1-0 Andri Rúnar Bjarnason ('1)
2-0 Ben Everson ('5)
3-0 Nigel Quashie ('15)
4-0 Sigurgeir Sveinn Gíslason ('21)
5-0 Dennis Rasmussen Nielsen ('71)
6-0 Markaskorara vantar ('80)
7-0 Ben Everson ('86)
7-1 Markaskorara vantar ('90)
%foreign_more%
„Auðvitað var þetta sjokk“
„Auðvitað var þetta sjokk. Ég er ekkert smeykur að segja það. Þjálfunin skilaði sér vel, þegar ég var búinn að velta honum, velti ég honum upp aftur og mat stöðuna eftir það,“ sagði Guðni Páll Viktorsson kajakræðari sem lenti í vandræðum í dag þegar hann fékk á sig brotsjó. Hann þá staddur utan við Meðallandssand.
%foreign_more%Uppskeruhátíð yngri flokka á fimmtudaginn
Uppskeruhátíð yngri flokka KFÍ verður haldin í íþróttahúsinu á Torfnesi næsta fimmtudag, uppstigningardag, frá kl. 13 til kl. 15. Að venju fer fram keppni blandaðra liða og börn og foreldrar takast á í Stinger-keppni. Veittar verða viðurkenningar í öllum flokkum og loks verður slegið upp veglegri veislu þar sem m.a. verður boðið upp á pylsur og ís. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma og fagna lokum vetrarstarfsins með krökkunum.
%foreign_more%Réri frá Ingólfshöfða í morgun
Róðrakappinn Guðni Páll Viktorsson lagði af stað á nýjan leik í hringferð sinni umhverfis landið í morgun, eftir að hafa verið veðurtepptur við Ingólfshöfða yfir helgina. Veður var ágætt þegar Guðni lagði í hann en töluverður sjór.
Guðni Páll, sem er 25 ára gamall, rær einsamall umhverfis Ísland á kajak en ferðin, sem hann kallar Lífróður, er farin til styrktar Samhjálp. Takist Guðna Páli ætlunarverkið verður hann annar Íslendingurinn sem lýkur þessu afreki, en sá fyrsti var Gísli H. Friðgeirsson.
Suðurströndin falleg en ógnvænleg
Ferðin hófst þann 30. apríl við Höfn í Hornafirði og áætlar Guðni Páll að verða um tvo mánuði á leiðinni með því að leggja um 70 km að baki á dag, að því gefnu að veður og sjóalag teppi ekki för hans um of líkt og gerðist við Ingólfshöfða.
Guðni Páll sagðist á bloggi sínu ánægður með þá ákvörðun að hefja ferðina meðfram Suðurströndinni. „Hún er afskaplega falleg en um leið ógnvænleg. Brimið getur verið heillandi eins og ógnvekjandi,“ sagði Guðni þegar hann kom að landi við Ingólfshöfða á föstudaginn.
Klukkan 9 í morgun lagði hann loks upp aftur og stefnir hann nú að Alviðruhamarsvita, skammt frá ósum Kúðafljóts í Álftaveri.
%foreign_more%Grímutölt Hestamannafélagsins Storms
Hið árlega Grímutölt Hestamannafélagsins Storms verður haldið í reiðhöllinni að Söndum, fimmtudaginn 25. apríl, sumardaginn fyrsta, kl. 13:00. Keppt verður í þremur flokkum, Krakkar (0-13 ára), ungmenni (14-20 ára) og fullorðnir (21 árs og eldri). Yngsti hópurinn má sýna brokk eða tölt og dæmt verður fyrir ásetu og stjórnun. Hinir tveir flokkarnir sýna eingöngu tölt; hægt, milliferð og hraðabreytingar. Dæmt verður fyrir fegurð í reið. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin en einnig verða veitt ein verðlaun fyrir flottasta búninginn í hverjum flokki. Skilyrði fyrir þátttöku er að knapar mæti í búningi. Skráningargjald er kr. 1.000.- sem greiðist á staðnum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma; 693-1847 - Viktor eða 696-3213 Signý. Gefa þarf upp nafn knapa og nafn hests.
Allir velkomnir á góða skemmtun. Áhorfendur mega endilega líka mæta í búningi! Kaffisala veður á staðnum og teymt undir börnum að keppni lokinni.
%foreign_more%Enn einn frábær þjálfari í æfingabúðirnar
Nemanja Jovanovic kemur frá Serbíu upprunarlega og var þar meðal annars leikmaður í unglingaliði Red Star frá Belgrad og síðan leikmaður BC Kolubara Lazarevac. Hann hefur þjálfað í Serbíu, Spáni og Danmörku og var í vetur aðstoðarþjálfari 79ers Denmark. Hann er aðstoðarþjálfari u-16 landsliðs Danmerkur og var í fyrra einnig aðstoðarþjálfari u-18 ára landsliðsins. Hann hefur unnið til margra verðlauna sem þjálfari yngri liða í Serbíu og á Spáni og var meðal annars valinn þjálfari ársins hjá BC Kolubara Lazarevac á Spáni.
Hann er með mikla reynslu í að halda þjálfaranámskeið og hefur flutt marga fyrirlestra meðal annars á Spáni, Litháen og Svíþjóð.
Nemanja fær meðmæli frá þjálfurum eins og Darko Rajakovic frá Tulsa NBA-D. Við fögnum komu hans í æfingabúðirnar sem eru með hverjum degi að vera meira spennandi fyrir iðkendur og þjálfara sem vilja læra meira.
%foreign_more%Viðburðardagatal
Næstu viðburðir
Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir
Eric Olson bætist í góðan þjálfarahóp í æfingabúðunum
Eric er 26 ára gamall og er þjálfari Fsu. Hann spilaði sem atvinnumaður í Englandi, Þýskalandi og í Ástralíu. Hann hefur verið að vinna við körfuboltabúðir í Englandi, Grikklandi og í BNA og einnig hefur hann þjálfað í Ástralíu og hjá Sun Walley community collage.
Eric gerði góða hluti með Fsu bæði hjá meistaraflokk og hjá akadeíunni og var núna nýlega að skrifa undir nýjan samning hjá þeim á Selfossi. Eric er góð viðbót í þjálfarateymið.
%foreign_more%Birgir Örn Birgisson nýr þjálfari mfl. KFÍ
Birgir Örn Birgisson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari meistaraflokka KFÍ og er stjórn félagsins mjög ánægð með að fá hann til starfa. Brgir Örn er Ísfirðingur og spilaði hér ungur að árum í körfu og var einnig í hinu gríðarsterka sundliði Vestra. Hann fluttist til Akureyrar og spilaði þar þrjú tímabil með Þór áður en hann fór til Keflavíkur og var í hraðlest þeirra í þrjú ár og varð tvöfaldur Íslandsmeistari með Keflavík. Hann var í landsliði Ísland bæði í körfubolta sem og sundi.
Birgir hefur um árabil verið í Þýskalandi og hefur þjálfað þar með góðum árangri. Birgir er mikill sigurvegari í hugsun og í verki og hefur ekki verið þekktur fyrir að vera í meðalmennskunni. Hann krefst mikils af sjálfum sér sem og þeim sem eru honum samferða.
Það er mikil tilhlökkun að fá Birgi Örn og fjölskyldu hans hingað. Eiginkona hans er Sigrún Pálmadóttir óperusöngkona frá Bolungarvík og eiga þau tvö börn.
Nú er tímabilið 2013-2014 komið á fullt og verður næsta verk að ganga frá samningum við leikmenn og ríkir mikil bjartsýni í þeirri ferð.
Áfram KFÍ
%foreign_more%Hart var barist í skíðakeppni framboðanna
Eyþór Jóvinsson frambjóðandi Lýðræðisvaktarinnar og Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar urðu hlutskörpust í gönguskíðakeppni framboðanna á Seljalandsdal í dag. Keppnin milli framboðanna markaði upphafið að skráningu í hina árlegu Fossavatnsgöngu sem fram fer 4. maí næstkomandi. Fossavatnsgangan var fyrst haldin árið 1938.
Frambjóðendurnir höfðu fæstir stigið á gönguskíði áður, svo segja má að frammistaða þeirra hafi verið með miklum ágætum. Sumir hlutu byltur, jafnvel feliri en eina og fleiri en tvær, en allir komu heilir í mark. Keppnin fólst í göngu og hittni. Keppendur urðu að staldra við í brautinni og kasta golfkúlu í vatnsfötu áður en þeir tóku lokasprettinn í mark. Tímataka leiddi í ljós 4 sekúndna mun á tveim efstu keppendunum, Eyþóri sem kom í mark á 34 sekúndum og Ólínu sem lauk brautinni á 38 sekúndum. Eyþór hafði áður heitið því að hann myndi skrá sig í Fossavatnsgönguna tækist honum að sigra aðra frambjóðendur í þessari frumraun sinni á gönguskíðunum. Hann stóð við það og hefur nú skráð sig í 7km gönguna. Ólína segir á Facebook síðu sinni í dag að hún sé að hugsa málið - hún þurfi kannski að "slípa stílinn aðeins" áður en hún láti til skara skríða í frekari keppni.
Veðrið lék við keppendur á Seljalandsdal í dag þar sem sól skein í heiði og fjallahringurinn skartaði sínu fegursta.
%foreign_more%Á kajak í kringum landið
Vinir og stuðningsmenn Samhjálpar komu saman í samkomusal Samhjálpar í gær til að kveðja Guðna Pál Viktorsson áður en hann heldur í kajakróður í kringum Ísland til styrktar Samhjálp.
Verkefnið heitir Around Iceland 2013 en þá mun Guðni Páll sigla á kajak sínum í kringum landið á 60 dögum. Ferðin mun hefjast á Höfn í Hornafirði þann 1. maí en hægt verður að fylgjast með róðrinum og heita á verkefnið á vefsíðunni www.aroundiceland2013.com.
%foreign_more%Dreymir um þátttöku í skútusiglingakeppni
Dýrfirðingurinn Snorri Þór Guðmundsson er staðráðinn í að láta drauma sína rætast og tekur nú þátt í keppni á netinu þar sem hann á möguleika á þátttöku í einni erfiðustu skútusiglingakeppni heims. Keppnin heitir Clipper Round The World Yacht Race og stendur yfir í 11 mánuði en Snorri sækir um að sigla einn "legg" keppninnar, frá Suður Afríku til Ástralíu. Aðeins eitt sæti er í boði og verður sá heppni valinn úr hópi þeirra sem hljóta flest atkvæði á netinu. Snorri er sem stendur í 1. sæti en skráðir þátttakendur eru 255 talsins og aðeins vika er eftir af kosningunni. Til að kjósa Snorra þarf að smella á tengilinn hér, velja Vote Now og skrá netfang. Til að staðfesta atkvæðið þarf að fylgja tenglinum sem birtist í tölvupóstinum frá system@experience-tour.com. Kosningu lýkur 23. apríl
%foreign_more%6.flokkspiltarnir glæsilegir deildarmeistarar á sínu fyrsta móti
Glæsilegur 6.flokkurinn gerði sér lítið fyrir um síðastliðna helgi og landaði deildarmeistaratitli í sinni fyrstu tilraun á Íslandsmóti. Um var að ræða lokamótið af fimm túrneringum en ákveðið var í upphafi vetrar að okkar drengir færu á eitt mót og þetta mót varð fyrir valinu af nokkrum ástæðum. Mótshaldarar voru Framarar og leikið var í Safamýrinni.
Flokkinn skipa margir flottir piltar sem allir eru á sínu fyrsta handboltaári hjá Herði og því afar skemmtilegt að sjá þá taka stolta og glaða við sigurverðlaunum í lok móts. Á þessum fyrstu árum í íþróttum er mikilvægt að allir fái að njóta sín og hafa gaman. Það er einmitt uppleggið í þessum flotta hópi, að allir fái að njóta sín og vera hluti af heildinni.
Lykiláherslan í vetur hefur verið á mjúkboltaspil en það fyrirkomulag er bæði afar skemmtilegt og eykur skilning þeirra á hreyfingu með og án bolta. Einmitt vegna þessa áherslupunkta og þar sem við höfum spilað mjög lítið á heilan völl í fullum uppsettum liðum var enn skemmtilegra að sjá allt liðið í heild sinni blómstra á mótinu.
Sigurleikirnir urðu að lokum þrír ásamt einu jafntefli. Fögnuðurinn var ósvikinn eftir hvern sigurleikinn og hverju marki var fagnað vel og innilega. Þeir sem skipuðu bekkinn hverju sinni studdu þá sem inni á vellinum voru með klappi og söng. Harðarstoltið var svo sannarlega til staðar og gaman að sjá eininguna sem ríkti innan hópsins. Frábært. Einstaklega gaman að þjálfa þessa töffara.
Ferðin lengdist um einn dag líkt og hjá 4.flokknum sökum veðurs en Hafþór og Svavar eru eldri en tvævetur í þessu og sáu til þess að allt gekk snurðulaust fyrir sig. Virkilega flott fyrsta handboltaferðin hjá þessum yngstu iðkendum félagsins og við hreinlega óskum þeim til hamingju með að vera svo flottir fulltrúar Ísafjarðar og nágrennis, algjörlega óháð flottum úrslitum á mótinu sjálfu. Þetta eru svo sannarlega Harðarpúkar framtíðarinnar.
%foreign_more%Styrktarsamningur við Orkubú Vestfjarða undirritaður
Forsvarsmenn Fossavatnsgöngunnar skrifuðu fyrr í dag undir endurnýjaðan styrktarsamning við Orkubú Vestfjarða á undirbúningsfundi Fossavatnsgöngunnar á Hótel Ísafirði, en undirbúningur við gönguna er auðvitað kominn á fullt. Slíkir styrktarsamningar skipta keppnina miklu máli og vilja forsvarsmenn göngunnar nýta tækifærið og koma þökkum á framfæri til Orkubúsins sem og annarra styrktaraðila.
Fjöldi skráninga í gönguna hefur sjaldan lofað jafn góðu, en nú þegar tvær vikur eru enn til stefnu eru komnar hátt í 200 skráningar og stefnir í þátttökumet. Þeir sem vilja taka þátt eru hvattir til að skrá sig hér á síðunni eða með því að smella hér. Fossavatnsgangan er einmitt einstök að því leitinu að það eru ólíkar vegalengdir í boði þannig að því ættu allir að finna keppni við sitt hæfi.
%foreign_more%4.flokkur lauk keppni í Eyjum
Flott lið Harðar í 4.flokki beið lægri hlut gegn virkilega góðu Eyjaliði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins um helgina. Það var ljóst frá upphafi að á brattann yrði að sækja í þessari hörkuviðureign. Okkar lið lét það ekki á sig fá og var vel stemmt þegar flautað var til leiks.
ÍBV 24 - 13 Hörður (11-7)
Eyjamenn áttu heimaleikjaréttinn þar sem þeir enduðu í 3.sæti 1.deildar á meðan okkar lið inn í keppnina sem sjötta efsta liðið en Harðverjar unnu 2.deild með miklum yfirburðum. Leikurinn byrjaði á að við misstum boltann í fyrstu tveimur sóknunum en svo fór þetta að lagast og baráttan var til staðar í vörninni. Skot okkar manna voru ekki að rata á réttu staðina og mikið var um að skjóta beint á markið, smá stress í gangi en það lagaðist þegar leið á leikinn. Eyjamenn komust með harðfylgi í 7-3 en Harðarpúkarnir komu sterkir til baka og minnkuðu muninn í 7-6. Lokasprettur Eyjamanna fyrir hálfleikinn var góður og þeir fóru með fjögurra marka forystu, 11-17, inn í hálfleikinn.
Þar ræddum við saman þar sem allt var lagt á borðið og í sölurnar. Leikmenn voru staðráðnir í að minnka muninn og gefa allt sitt í verkefnið. Sem og þeir í raun gerðu að flestu leyti nema að leikmenn náðu aldrei að framkalla sinn besta leik enda ekki nógu vanir svona miklum spennuleikjum. Það breytist vonandi á næstu árum þegar þeir spila gegn sterkari liðum og verða sjálfir enn betri.
Lokaniðurstaðan gaf ekki alveg rétta mynd af leiknum að mínu mati en mjög sanngjarn heimasigur staðreynd, 24-13. Harðverjar geta borið höfuðið hátt eftir frammistöðu vetrarins og ljóst að hægt er að byggja vel ofan á þetta í framtíðinni. Hörður1 og Hörður2 sameinast líklega í eitt stórt lið næsta vetur og þá ætti stemmningin að verða enn betri eftir heilan vetur þar sem allir fengu að spila alla leiki með fáa varamenn en það var einmitt ætlun vetrarins.
Markaskorarar Harðar í leiknum: Gísli Jörgen 6, Friðrik Þórir 2, Pétur 2, Jakob Jóhann 1, Hjalti Hermann 1, Eggert Karvel 1. Jens átti góðan leik í markinu og varði 16 skot en hann átti þar með 40% markvörslu. Piltarnir eiga að vera stoltir af sér.
Ferðin var flott í alla staði með Gísla Jón fararstjóra í broddi fylkingar en hópurinn hélt til Eyja frá Landeyjarhöfn á föstudagskvöldi eftir keyrslu frá Ísafirði fyrr um daginn. Stefnan var svo alltaf tekin á heimferð á sunnudeginum eftir gistingu á Hótel Hafnarfirði eina nótt en sú dvöl lengdist fram til mánudags þar sem ófært var á sunnudeginum. Það kom ekki að sök þar sem hópurinn hafði nóg fyrir stafni í ísrúntum, bíóferðum, stelpustússi, ömmubrönchum, stjórnmálaspjalli, Hjaltahittingum og fleira.
Ein heild. Eitt lið. Hörður!
%foreign_more%Veðrið á Vestfjörðum
- Bíldudalur kl:16:00
SV 4 m/s, 6,4 °C - Gemlufallsheiði kl:16:00
V 1 m/s, 4,7 °C - Patreksfjörður kl:16:00
V 4 m/s, 5,3 °C - Reykhólar kl:16:00
SV 3 m/s, 6,1 °C - Tálknafjörður kl:16:00
NV 5 m/s, 4,5 °C
- Bolungarvík kl:16:00
V 2 m/s, 4,6 °C - Flateyri kl:16:00
NV 5 m/s, 4,5 °C - Ísafjörður kl:16:00
A 4 m/s, 4,9 °C - Steingrímsfjarðarheiði kl:16:00
Logn 0 m/s, 1,7 °C - Súðavík kl:16:00
N 5 m/s, 4,7 °C



Meira









