Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Nýtt lið í Mýrarboltanum - spurt um öryggisgæslu

Vestur.is | föstudagurinn 20. júlí 2012 kl. 20:18

Nýtt lið, The Gladiators, skráð til leiks var skráð til leiks í Mýrarboltanum í dag og eru félögin semt mæta til keppni þá orðin 26. Stuttu áður barst Mýrarboltafélaginu fyrirspurn á engilsaxnesku frá sömu aðilum um hvernig öryggismálum væri háttað á mótssvæðinu og var um að ræða nokkrar óvenjulegar óskir. Meðal annars má nefna beiðni um að aðrir þátttakendur skrifi undir þagnarheit um það sem fram fer í Mýrarboltanum, "We request that what happens at Myrarbolti stays at Myrarbolti" var rökstuðningur liðsins. 

 

Fyrirliði "The Gladiators" fannst ekki í þjóðskrá en hann ber hið sérstaka nafn, Coless Reuwr. Staðfestingargjald hefur verið greitt fyrir liðið en Mýrarboltafélagið hefur ákveðið að séróskir séu aumingjaskapur og hafnar þeim því alfarið.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir