Myndband: Stuð í Mýrarbolta
Vestur.is | föstudagurinn 29. júní 2012 kl. 19:32
Evrópumeistaramótið í Mýrarboltanum verður haldið á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Í ár verða teknar upp nokkrar nýjar keppnisgreinar, meðal annars verður keppt í Stuðbolta sem er hefðbundinn Mýrarbolti þar eru leikmenn með rafstuðólar um lærin.
Það er því óhætt að segja að fréttamaður Vestur.is hafi verið í stuði um daginn, þegar hann tók þátt í fyrsta stuðbolta leiknum í heimi.