Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Halldór Gunnar hefur hljóðritað rúmlega 1% þjóðarinnar!

Halldór Gunnar Pálsson og þjóðlagið from Kjálkinn on Vimeo.

Vestur.is | miðvikudagurinn 25. apríl 2012 kl. 23:22

Vestfirðingurinn Halldór Gunnar hefur staðið í ströngu seinustu vikurnar, en hann er nú á ferð um landið til að hljóðrita rödd þjóðarinnar. Takmarkið er að hljóðrita söng 10% þjóðarinnar, eða 30.000 mans og nota sem lokakafla í nýju lagi með Fjallabræðrum.

 

Hringferðin hófst á Vestfjörðum og hefur hann farið austur og er nú staddur fyrir norðan þar sem hann hljóritar söng nokkur hundruð manns á dag. Alls hefur hann nú tekið upp 3.389 íslendinga, eða rúmlega 1% af þjóðinni.

 

Í dag sló hann fjöldametið þegar hann fékk 369 nemendur og kennara í Brekkuskóla á Akureyri til að taka lagið fyrir hann. Næsta stopp verður svo Dalvík

 

Halldór Gunnar á enn eftir að fara á höfuðborgarsvæðið og næsta nágreni þannig að þetta lítur vel út með að honum takist ætlunarverk sitt. Allir sem hafa áhuga á syngja inn á lagið eða aðstoða hann við þetta skemmtilega verkefni geta nálgast allar frekari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thjodlag.is

 

Hér fyrir neðan má svo sjá viðtal við Halldór Gunnar þegar hann var staddur á Flateyri í upphaf ferðalagsins.

 


Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir