Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Flýting samgönguframkvæmda á Vestfjörðum

Vestur.is | föstudagurinn 1. júní 2012 kl. 16:30

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga, styður áform um flýtingu á gerð Dýrafjarðarganga samkvæmt fjárfestingaráætlun ríkisstjórnar sem kynnt var þann 18. maí s.l..  Ákvörðun ríkisstjórnar fellur að stefnumörkun og ályktunum sveitarfélaga á síðustu árum og nú síðast undirskriftarsöfnun íbúa á Vestfjörðum.

 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga áréttar þann skilning, að þessi áform komi til viðbótar þeim verkefnum sem eru nú til umfjöllunar á Alþingi í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2011-2022.  Vísar stjórn til umsagnar Fjórðungssambands Vestfirðinga til Alþingis um samgönguáætlun 2011-2022 í þessum efnum, sem varðar m.a. fullnaðarfjármögnun framkvæmda við Vestfjarðaveg 60 í Gufudalssveit. 

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir