Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband

Árituð fótboltatreyja Matthíasar Vilhjálmssonar seldist á 250 þúsund

Vestur.is | sunnudagurinn 13. maí 2012 kl. 12:41

Herrakvöld BÍ/Bolungarvíkur var haldið á Ísafirði í gær. Sólmundur Hólm var veislustjóri og aðalræðumaður kvöldsins var Skákmeistarinn Magnús Pálmi Örnólfsson. Leikmenn liðsins voru kynntir og Jörundur Áki fór yfir veturinn og væntingar sumarsins.

 

Hápunktur kvöldsins var þó uppboðið, en þar voru boðnir upp fjölmargir munir, málverk, styttur og fótboltatreyjur. Boðnar voru upp áritaðar treyjur Gylfa Sigurðssonar, Emils Hallfreðssonar, leikmanna BÍ/Bolungarvíkur og Start treyja Matthíasar Vilhjálmssonar, sem var sleginn á 250 þúsund krónur, til styrktar BÍ/Bolungarvíkur.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir