Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
mbl.is | 24/05/2013 Kl. 10:36

Guðni Páll kominn að höfuðborgarsvæðinu

Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt

mbl.is | 24/05/2013 Kl. 10:34

Sérstök vakt verður við framhlaupið í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum í dag og síðan verður veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta á laugardagsmorgun. Á laugardag verður áfram vakt að deginum til og aðstæður metnar að nýju. Ástæða þessa er úrkoman sem verður á svæðinu í dag sem eykur hættuna á frekari skriðuföllum.

Til þess gæti komið fyrirvaralítið að loka þurfi veginum og eins verða aðstæður metnar í fyrramálið, hafi áhættan aukist um nóttina gæti komið til þess að ekki yrði hægt að opna veginn fyrr en síðar en klukkan átta.

Ástandið ógn við atvinnuöryggi

mbl.is | 23/05/2013 Kl. 23:48

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ástand sé beinlínis ógn við atvinnuöryggi íbúa.

dv.is | 23/05/2013 Kl. 16:59

Rómantísk mynd af mótorhjólamönnum

Það er olíulykt í loftinu í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Drunur úr mótorhjólum berast úr litlu hliðarherbergi og í miðjum salnum stendur nafnlausi hesturinn – sérsmíðað mótorhjól sem ljósmyndarinn Spessi ferðaðist á um Bandaríkin og sýningin dregur nafn sitt af. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og hefur vakið talsverða athygli. Spessi flutti til Bandaríkjanna, bjó í Arkansas, Tennessee, Mississippi og víðar og fékk fágæta innsýn í heim þeirra sem ferðast á vélfákum. Í texta sem fylgir sýningunni segir hann um að ræða eins konar þjóðfræðilega úttekt á þessum sérstaka „ættbálki“ sem mótorhjólamenn eru.

flateyri.is | 23/05/2013 Kl. 12:42

Hákarl og harðfiskur í Bragðörk

Slow Food-samtökin hafa skráð hjallaþurrkaðan harðfisk, sólþurrkaðan saltfisk, kæstan hákarl og sjávarsalt úr Reykjanesi í »Bragðörkina«, lista yfir þjóðlegar afurðir sem eiga á hættu að hverfa í hraða hversdagsins. Verið er að undirbúa umsókn um skráningu íslensks taðreykts hangikjöts og fleiri afurða.

»Það er mikil viðurkenning fyrir okkur að harðfiskurinn hafi verið samþykktur, viss gæðavottun. Ég vona að Slow food-hugmyndafræðin breiðist meira út hér á landi, að fólk hugsi betur um það hvað það er að láta ofan í sig,« segir Guðrún Pálsdóttir á Flateyri sem rekur harðfiskverkunina E.G. Fiskverkun með Einari Guðbjartssyni, manni sínum, og fjölskyldu.

reykholar.is | 23/05/2013 Kl. 10:21

Geta ekki verið ungar Rögnur og ungir Broddar hér

Guðjón Dalkvist Guðjónsson á Reykhólum (þekktari sem Dalli) fyrir hönd gróðuráburðarins Glæðis færði fyrir nokkru nemendum í 4.-10. bekk Reykhólaskóla badmintonspaða að gjöf. Hann stefnir síðan að því að fjórðubekkingar í skólanum hverju sinni fái spaða. „Þegar ég keypti spaðana hjá TBR [Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur] var mér tjáð, að þeir gæfu fjórðubekkingum sams konar spaða ár hvert. Við Kolfinna [íþróttakennari á Reykhólum] ákváðum að stefna að því sama hér, þ.e. að Glæðir gæfi fjórðubekkingum spaða næstu ár.“

Maðurinn sem fannst látinn í Kaldbaksvík á Ströndum að kveldi 17. maí síðastliðins hét Gunnar Gunnarsson. Gunnar var fæddur 1962 en þann 12. desember 2012 mun Gunnar Gunnarsson hafa fallið útbyrðis af Múlabergi SI-22, djúpt út af Húnaflóa. Lögreglunni barst tilkynning um líkfund í Kaldbaksvík þann 17. maí síðastliðinn en það voru ferðamenn sem komu að Gunnari. Lögreglan fór þá þegar á vettvang. Vettvangur var rannsakaður og líkið flutt til rannsóknar hjá kennslanefnd Ríkislögreglustjóraembættisins. Niðurstöður þeirrar rannsóknar eru ótvíræðar.

ruv.is | 22/05/2013 Kl. 12:53

Kennsl borin á líkamsleifar á Ströndum

Kennsl hafa verið borin á líkamsleifar sem fundust í Kaldbaksvík á Ströndum í síðustu viku, þegar ferðafólk gekk fram á þær í fjörunni. Líkamsleifarnar voru fluttar til Reykjavíkur þar sem kennslanefnd Ríkislögreglustjóra rannsakaði þær.

Niðurstaða liggur fyrir um hver þetta var, segir Sigfús Nikulásson, sérfræðingur í meinafræði við Landspítala, sem situr í kennslanefnd. Greiningin byggðist á tönnum sem fundust, og samanburði við tannlæknaskýrslur.

Kennslanefnd kemur saman eftir hádegi í dag, þar sem niðurstöður þessarar rannsóknar verða formlega afgreiddar og skilað til lögreglunnar á Vestfjörðum.

%foreign_more%
mbl.is | 22/05/2013 Kl. 11:58

Breyta yfirbragði óraskaðs svæðis

Skipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif framkvæmda við gerð jarðganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar verði sjónræn eðlis og áhrif á landslag.Þetta kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum „Framkvæmdasvæðið er innan svæðis sem nýtur verndar vegna fjölbreytts og stórbrotins landslags og munu háar fyllingar og áberandi skeringar beggja megin gangamunnanna, auk munnanna sjálfra, koma til með að breyta yfirbragði þessa óraskaða svæðis og hafa talsverð neikvæð, óafturkræf áhrif á landslag svæðisins. Sömu leiðis veglagning í fjöru í Dýrafirði sem jafnframt mun hafa staðbundin neikvæð áhrif á búsvæði þeirra fuglategunda sem halda til í fjörunni, m.a. rauðbrysting,“ segir í álitinu.

%foreign_more%
skutull.is | 22/05/2013 Kl. 11:40

Funi heldur tónleika í Einarshúsi í kvöld

Dúettinn Funi heldur tónleika í Einarshúsi í Bolungarvík í kvöld, 22. maí og hefjast þeir klukkan 21. Þar munu þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster leika af nýjum hljómdiski sem ber heitið FLÚR og inniheldur lítt þekkta, gullfallega, íslenska þjóðlagatónlist. Á diskinum Flúr er að finna nokkur ný lög eftir Báru sem fæst hafa komið út fyrr, en flest lögin eru þó kvæðalög, tvísöngslög og sálmalög sem fundist hafa í ýmsum gömlum heimildum og eru flutt í útsetningum Báru og Chris. Textarnir eru bæði nýir og gamlir, allt frá þjóðkvæðum og sálmum frá 16. öld til kvæða eftir Grím Lárusson frá Grímstungu, föður Báru. Disknum fylgir 32 síðna bæklingur á íslensku og ensku. Bára og Chris syngja bæði og auk þess leikur Bára á finnskt kantele, en Chris spilar á gamla íslenska hljóðfærið, langspil, enskt hammer dulcimer og á gítar. Með þeim koma einnig fram Birgir Bragason sem leikur á kontrabassa, Lárus Halldór Grímsson á klarínett, Andri Eyvindsson á saxafón og söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson. Dúettinn Funi leikur í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði annað kvöld, 23.maí klukkan 20. Aðgangseyrir á tónleikana eru 1500 krónur.

%foreign_more%
mbl.is | 18/05/2013 Kl. 14:33

Líkfundur á Ströndum

Sjórekið lík fannst í fjörunni í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést né heldur hversu lengi líkið hefur verið í fjörunni en ekki er búið í Kaldbaksvík árið um kring.

Ekki er hægt að fá nánari upplýsingar um málið að svo stöddu en líkið verður flutt til Reykjavíkur þar sem réttarmeinafræðingar rannsaka það.

%foreign_more%
mbl.is | 18/05/2013 Kl. 10:22

Búið að opna leiðina um Kjálkafjörð

Vestfjarðavegur nr. 60 verður opinn um Kjálkafjörð í dag en lokast aftur um miðnætti aðfaranótt sunnudags 19. maí um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

%foreign_more%
mbl.is | 17/05/2013 Kl. 16:46

Hætta á skriðuföllum í Kjálkafirði

Vestfjarðarvegur nr. 60 verður lokaður í Kjálkafirði frá miðnætti aðfaranótt laugardagsins 18. maí um óákveðinn tíma vegna hættu á skriðuföllum,samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Áætlað er að um 150 þúsund rúmmetrar af mold og grjóti hafi fallið á veginn þann 23. apríl sl. og þykir mildi að ekki fór verr því vegagerðarmenn voru að störfum þegar hún féll.

%foreign_more%

Viðburðardagatal

Vestfirðir á Instagram #Vestfirðir

hsv.is | 17/05/2013 Kl. 12:14

Handboltaæfingahelgi - FRÍTT fyrir alla

Núna um helgina fara fram æfingar í Torfnesi undir handleiðslu landsliðskvenna (meðal þeirra sem mætir er Hrafnhildur Skúladóttir) sem og unglingalandsliðsþjálfara í íþróttinni. Hörður og HSÍ bjóða upp á þessar æfingar í sameiningu og ekkert kostar að taka þátt. Um að gera að mæta og sjá hvað er í boði óháð því hvort viðkomandi æfi handbolta nú þegar eða ekki - og í kjölfarið er engin skuldbinding á að halda áfram eftir námskeiðið.

%foreign_more%
mbl.is | 17/05/2013 Kl. 11:40

María Rut formaður Stúdentaráðs HÍ

María Rut Kristinsdóttir hefur verið kjörin formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hún er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, sem vann meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs í febrúar. María Rut er Flateyringur og er að ljúka grunnnámi í sálfræði við HÍ. Á síðastliðnu starfsári Stúdentaráðs sat María Rut í stjórn ráðsins auk þess að sitja í Háskólaráði og Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands.

Í tilkynningu segir að María Rut telji mikilvægt að á starfsárinu muni Stúdentaráð halda áfram að berjast fyrir samþykkt á frumvarpi um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem meðal annars feli í sér styrk til námsmanna. Einnig leggi María áherslu á að nýkjörin Sviðsráð fræðasviðanna fimm fari af stað með krafti og vinni að því að bæta það sem bæta þarf á hverju fræðasviði fyrir sig. „Stúdentaráð mun halda áfram að berjast fyrir auknu fjárframlagi til háskólans svo tryggt verði að greitt sé með öllum nemendum háskólans. María leggur áherslu á að Háskóli Íslands verði fjölskylduvænn og góður kostur fyrir alla þá sem hafa áhuga á háskólanámi.“

%foreign_more%
visir.is | 17/05/2013 Kl. 09:46

Sjómaður hætt kominn

Í óefni stefndi, þegar vél bilaði i litlum fiskibáti þegar hann var staddur aðeins eina sjómílu norðvestur af Rit, í mynni Ísafjarðardjúps í gærdag. Bátinn tók að reka í átt að grýttri ströndinni. Bátsverjinn kallaði þegar eftir hjálp og var björgunarskip Landsbjargar sent af stað frá Bolungarvík. En á meðan það var á leiðinni kom annar fiskibátur að bilaða bátnum og dró hann frá landi, þannig að ekki var lengur hætta á ferðum. Björguarskipið dró svo bilaða bátinn til hafnar.

%foreign_more%
mbl.is | 16/05/2013 Kl. 15:52

Vilborg gengur með Gísla í Uppsölum

Fjallagarpurinn Vilborg Arna Gissurardóttir er nú stödd í um 4000 metra hæð í hlíðum hæsta fjalls N-Ameríku, Denali sem er jafnframt fyrsti áfangi í leiðangri hennar á hæstu tinda allra heimsálfa. Meðal þess sem hún ber með sér á tindinn er bókin Eintal, með ljóðum og hugleiðingum Gísla í Uppsölum.

%foreign_more%
komedia.is | 16/05/2013 Kl. 12:31

Gísli Súrsson fer heim í Súrnadal

Verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson hefur farið víða frá því leikurinn var frumsýndur árið 2005. Um allt Ísland fyrir vestan, austan, norðan og sunnan. Um Evrópu í Albaníu, Luxemburg og tvívegis í Þýskalandi. Enn er sýningin í landvinningum því í vikunni bætist Noregur í sýningarbókhald Gísla Súrssonar. Ekki nóg með það heldur er í raun verið að fara með Gísla heim því sýnt verður í hans fæðingarbæ nefnilega Súrnadal í Noregi.

Árlega er haldin mikil menningarveisla í Súrnadal í Noregi sem nefnist Varsöghelga. Þar er boðið uppá menningu og listir alla daga. Leikritið um Gísla Súrsson verður sýnt tvívegis á þessari hátíð sem fram fer í þessari viku. Einnig verða sýnd brot og kynningar á leikverkinu á hátíðinni. Það verður sannarlega gaman að sýna þessa einstöku sýningu okkar í heimahögum sögupersónunnar. Nú eigum við bara eftir að sýna í Hergilsey þá höfum við sýnt Gísla á öllum helstu sögustöðum þess Súra.

%foreign_more%

Á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar á mánudag lagði Eiríkur Finnur Greipsson formaður ráðsins fram bréf þar sem hann óskaði eftir ótímabundnu leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ frá og með 1. júní næstkomandi. Eiríkur Finnur var oddviti lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningum árið 2010. Hann gegir formennsku í bæjarráði og í nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði. Eiríkur Finnur tilkynnti fyrir nokkru að hann væri á förum úr bæjarfélaginu, en hann býr sem kunnugt er á Flateyri. Gísli Halldór Halldórsson skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við síðustu kosningar. Reikna má með að hann muni taka sæti Eiríks Finns sem formaður bæjarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynda meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Kosningar fara fram eftir rétt ár, í lok maí 2014.

%foreign_more%

Ung framhaldsskóladama lætur ekki fordóma og aðkast aftra sér frá því að vekja fólk til vitundar um helvíti átröskunar. Hún var spurð hvort hún fengi vinnu í sjoppu af því að eigandinn gæti treyst því að hún æti ekki á sig gat. Jóhanna Berta er sjálf með átröskun og hefur þrátt fyrir ungan aldur lagt sitt af mörkum með greinaskrifum til vitundarvakningar um slíka kvilla.

%foreign_more%

Það má með sanni segja að mikið líf sé á hafnarvæðinu í Bolungarvík þegar trillurnar streyma að landi eftir vel heppnaða sjóferð. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í síðustu viku en þá myndaðist löndunarbið þegar strandveiðibátarnir komi til hafnar hver á eftir öðrum í fallegu vorveðri. Afraksturinn má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan.

%foreign_more%

Veðrið á Vestfjörðum

Færð á vegum

Samferða til Vestfjarða

VantarFráTilDags
Far Ísafjörður Reykjavík 25. maí.
Farþ. Reykjavík Ísafjörður 25. maí.
Farþ. Ísafjörður Reykjavík 25. maí.
Farþ. Hólmavík Reykjavík 25. maí.
Far Reykjavík Þingeyri 29. maí.
Far Ísafjörður Reykjavík 29. maí.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir