Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
fimmtudagurinn 19. júlí 2012

Skipta skemmtiferðaskipin máli?

Ein algengasta spurningin sem ég fæ í Vestfirzku Verzluninni sem rek á Ísafirði er hvort að ferðamennirnir af skemmtiferðaskipunum skili sér inn til mín, hvort að þeir kaupi eitthvað. Það virðist vera almenn skoðun flestra að ferðamennirnir af skemmtiferðaskipunum séu ekki að skila sér nægilega vel inn í verslanir og veitingahús á Ísafirði, sem og á öðrum stöðum.

 

Það kemur kannski flestum á óvart að Vestfirzka Verzlunin er í raun ekki ferðamannaverslun, þótt ferðamenn sæki auðvitað mikið í verslunina, Þá eru Íslendingar okkar aðal viðskiptavinir þó fjölmargir erlendir ferðamenn leggi leið sína í verslunina dag hvern. Því finna sjálfsagt aðrar verslanir og þjónustufyrirtæki fyrir frekari sveiflur við komu skipana.

 

 

Hér fyrir ofan má sjá hvernig sala seinustu sex vikur skiptist eftir dögum. Súluritið er þannig upp sett að þann dag sem við seldum mest er skráð 100% sala, svo skrái ég hlutfall af þeirri sölu á hina dagana. Til að byrja með er áhugavert að skoða súluritið án þess að merkja skemmtiferðaskipin sérstaklega inn. - Fjórtán skemmtiferðaskip komu til Ísafjarðar á tímabilinu. Getur þú giskað á hvaða daga það voru?

 

 

Hér fyrir neðan má svo sjá skipin merkt inn. Það ber að hafa í huga að skipin eru auðvitað misjöfn að stærð, allt frá skipum með tæplega 300 farþega upp í rúmlega 3000 farþega. Þar að auki eru talsvert margar aðrar breytur sem eru ekki teknar inn í súluritið, til að mynda getur stórt ættamót, bæjarhátíðir og annað haft talsverð áhrif, oft meiri en eitt lítið skemmtiferðaskip.

 

 

Ef við skoðum svo söluna eftir að ég hef merkt skemmtiferðaskipin inn þá virðist í fljót bragði ekki vera áberandi meiri sala þá daga sem skemmtiferðaskipin eru í höfn. En ef við skoðum tölurnar á bak við súluritið þá er greinilegur munur á þeim dögum.

 

Meðalsala þá daga sem ekkert skip er í höfn er 29% af besta degi, en sé litið til meðalsölu á þeim dögum sem skip eru í höfn hækkar sú tala upp í 42% - Það munar um minna.

 

- Af tíu söluhæstu dögum sumarsins voru skip í höfn í sex skipti.

- Af þeim tuttugu dögum sumarsins sem ég seldi minnst komu aðeins fjögur skip.

 

Auðvitað viljum við öll að þeir ferðamenn sem koma til Ísafjarðar skilji sem mest af fjármunum og góðum minningum eftir á Vestfjörðum. En það er oft stutt í neikvæðnina þegar menn ræða um ferðmennina af skemmtiferðaskipunum, það er kvartað og kveinað yfir því að þeir eyði litlu sem engu í landi, taki ekki einu sinni veskin með sér í land og fari um borð í skipin til að fá sér hádegismat.

 

Það er alfarið undir okkur komið að bjóða upp á þjónustu og vörur sem að ferðamennirnir hafa áhuga á. Hér koma árlega 30.000 ferðmenn með skemmtiferðaskipum. Það eru 30.000 tækifæri fyrir okkur.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir