Senda fréttatilkynningu - Auglýsingar - Hafa samband
föstudagurinn 29. júní 2012

Ég ætla ekki að kjósa þá Þóru sem menn keppast við að búa til í fjölmiðlum

 

Ég hef aldrei kosið Samfylkinguna og sjálfsagt er ég hrifnari af Ólafi en ESB. Þá verð ég einnig að viðurkenna það, að ég fékk kjánahroll yfir Þórulaginu, og í sannleika sagt þá hef ég ekki enn haft það í mér að horfa á það til enda.

 

En það breytir ekki skoðunn minni á Þóru Arnórsdóttur. Henni kynntist ég ásamt Svavari manni hennar og börnum síðasta sumar, er þau höfðu umsjón með sveitagistingu á Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundarfirði. Það var þeirra sumarfrí, að komast vestur á firði og taka að sér heilt gistiheimili yfir sumarmánuðina. - Því jú, það er dýrt að ferðast með sjö manna fjölskyldu.

 

Þar kynntist ég einstakri konu og fallegri fjölskyldu. Það var gaman að fylgjast með þeim fullum af krafti og gleði. Börnin hjálpuðu til að búa um rúmin, Svavar stóð vaktina í eldhúsinu þar sem hann eldaði ofan í gesti á meðan Þóra lét fara vel um þá. Ekkert verkefni var of lítið og ekkert of stórt fyrir fjölskylduna

 

Það var fróðlegt að fá að heyra frá „sjónvarpsstjörnulífinu“ í Reykjavík, en það fól í sér að fá lánaða kjóla fyrir útsendingar og ná svo næsta strætó heim í Hafnarfjörð eftir útsendingu, þar sem daglega lífið beið hennar. Heimili fullt af börnum, tiltekt og uppvaski.

 

Ég ætla ekki að kjósa þá Þóru sem menn keppast við að búa til í fjölmiðlum. Ég ætla að kjósa þá Þóru sem ég þekki, með öllum sínum kostum og göllum. 

 

- Ég er sannfærður um að hún muni, ásamt fjölskyldu sinni standa sig vel sem forseti Íslands.

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir

Fleiri vestfirskar fréttir