Ekkert er einsog ACT ALONE
Act alone leiklistarhátíðin verður haldin um aðra helgi á Suðureyri. Fjörið hefst fimmtudaginn 9. ágúst og lýkur ekki fyrr en seint á sunnudegi 12. ágúst. Act alone er sannarlega einstök hátíð og óhætt er að segja að ekkert sé í líkingu við Act alone. Hátíðn er helguð einleikjalistinni og í ár verður boðið uppá einleikjahlaðborð af bestu sort. Og takið eftir.
ÞAÐ ER FRÍTT INNÁ ALLA VIÐBURÐI Á ACT ALONE
Dagskrá hátíðarinnar er á heimasíðunni www.actalone.net
Boðið verður uppá hátt í 20 viðburði og pottþétt finna allir eitthvað við sitt hæfi. Leiklist, dans, söngur og meira að segja fiskiveisla. Það er full ástæða til að taka sér frí frá vinnu Act alone helgina 9. - 12. ágúst - það kostar ekkert.










